Alice Wiedel: Evrópa að verða eins og Sovétríkin

Alice Weidel, formaður Alternative für Deutschland (AfD), segir Evrópusambandið vera orðið að skrifræðiskerfi að sovéskri fyrirmynd sem raski frjálsum mörkuðum og lýðræðislegum ferlum í Evrópu. Hún segir þróunina ekki einskorðast við Þýskaland heldur ná til Evrópu allrar og nefnir meðal annars afskipti stofnana af stjórnmálum og kosningum.

Weidel segir að hún hafi alist upp í Vestur-Þýskalandi og aldrei ímyndað sér að hún myndi síðar sjá þróun í landinu sem minnti hana á Austur-Þýskaland. Hún vísar þar sérstaklega til eftirlits og aðferða sem hún lýsir sem sovéskum.

Sterkari flokkur kallaði á harðari aðgerðir

Weidel segir AfD hafa orðið fyrir þrýstingi allt frá stofnun flokksins árið 2013. Fyrst hafi fjölmiðlar og stjórnmálamenn stimplað flokkinn sem hægrisinnaðan og öfgaflokk með það að markmiði að einangra hann frá samfélaginu.

Hún segir afleiðingarnar hafa náð langt út fyrir stjórnmálin. Flokksmenn og makar þeirra hafi misst störf og hún segir eigin fjölskyldu hafa orðið fyrir miklum áhrifum. Hún segist sjálf í reynd ekki geta starfað við fyrri störf sín í banka- og ráðgjafageiranum vegna þess að viðskiptavinir hennar yrðu fyrir þrýstingi ef tengsl þeirra við hana yrðu opinber.

Að sögn Weidel jukust stofnanalegar aðgerðir gegn AfD eftir því sem fylgi flokksins óx. Hún bendir sérstaklega á þýsku stjórnarskrárverndina sem hafi fyrst tekið flokkinn til skoðunar og síðar flokkað hann með sífellt alvarlegri hætti vegna gruns um öfgastefnu.

Óttast að AfD verði bannaður

Weidel segir raunverulega hættu á því að reynt verði að banna AfD. Versta sviðsmyndin að hennar mati sé að flokkurinn verði bannaður og forystumenn hans jafnvel fangelsaðir á grundvelli mála sem búin verði til gegn þeim.

Hún telur þó erfitt að útiloka flokk sem nýtur stuðnings milljóna Þjóðverja. Hún segir AfD hafa meira en 10 milljónir kjósenda og vera sérstaklega sterkan í austurhluta Þýskalands.

Weidel gagnrýnir einnig hvernig komið sé fram við AfD á þýska þinginu. Hún segir þingflokkinn skipa meira en 150 þingmenn en að honum sé haldið frá þeirri þátttöku og áhrifum innan þingsins sem fylgi hans eigi að tryggja. Að hennar mati sé þar verið að ganga gegn réttindum stjórnarandstöðu og grafa undan lýðræðislegum ferlum.

Fjölmiðlar hluti vandans

Weidel telur fjölmiðla gegna lykilhlutverki í þessari þróun. Hlutverk þeirra eigi að vera að tryggja almenningi upplýsingar og gagnsæi svo fólk geti myndað sér upplýsta skoðun. Þegar fjölmiðlar séu ekki lengur hlutlausir og verji ákveðna pólitíska stefnu raskist þetta ferli.

Hún gagnrýnir sérstaklega þýska ríkisfjölmiðla og segir þá vinna gegn AfD. Hún þakkar Elon Musk fyrir kaupin á X og segir samfélagsmiðilinn hafa gefið fólki, sérstaklega yngri kynslóðum, möguleika á að afla sér upplýsinga utan hefðbundinna fjölmiðla.

Weidel telur að þróunin sé nú komin að mikilvægum tímamótum. Að hennar sögn séu rangfærslur, spilling og blekkingar smám saman að koma í ljós en viðbrögð kerfisins verði harðari eftir því sem það gerist. Hún segir baráttuna því snúast um meira en framtíð AfD og telur lýðræðislega ferla í Evrópu sjálfri undir þrýstingi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila