Alþjóðlegur fíkniefnahringur upprættur í samhæfðum aðgerðum lögreglu – 11 handteknir á Íslandi

Löggæsluyfirvöld á Íslandi í samstarfi við erlend yfirvöld hafa upprætt fjölþjóðlegan skipulagðan brotahóp sem talinn er hafa staðið fyrir umfangsmiklum innflutningi fíkniefna frá Suður-Ameríku til Evrópu. Aðgerðirnar voru hluti af samræmdri rannsókn lögreglu og ákæruvalds á Íslandi, í Litháen og á Spáni með stuðningi alþjóðastofnananna Europol og Eurojust.

Tuttugu og fjórir handteknir í fimm löndum

Rannsókn málsins hefur staðið yfir í tæpt ár og náði hámarki með samhæfðum aðgerðardegi 4. febrúar þegar alls 24 voru handteknir í fimm löndum. Ellefu voru handteknir á Íslandi, sex í Litháen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku. Samhliða handtökunum fóru fram fjöldi húsleita þar sem haldlagðir voru fjármunir, raftæki, rafmyntaveski, greiðslukort og verðmæti á borð við armbandsúr.

Gefnar hafa verið út ein norræn og þrjár evrópskar handtökuskipanir að beiðni íslenskra yfirvalda vegna fjögurra hinna handteknu. Þrír íslenskir lögreglumenn tóku þátt í aðgerðum á Spáni.

Burðardýr og peningaþvætti

Samkvæmt upplýsingum lögreglu studdist hópurinn að miklu leyti við svonefnd burðardýr, einstaklinga í viðkvæmri stöðu sem fluttu fíkniefnin á milli landa. Efnin voru falin í farangri, flutt innvortis eða í fljótandi formi. Eftir komu til Íslands sá hópurinn um dreifingu efna hér á landi en hagnaðurinn var að sögn þvættaður í gegnum fasteignaviðskipti og aðrar eignir í Litháen. Talið er að ólögmætur ágóði starfseminnar nemi um fjórum milljónum evra.

Víðtækt alþjóðlegt samstarf

Vegna umfangs málsins var komið á sameiginlegu rannsóknarteymi íslenskra og litháískra yfirvalda með aðkomu spænskra lögregluyfirvalda. Fundir fóru fram í Haag þar sem ljóst varð að starfsemi hópsins næði einnig til Danmerkur og Belgíu. Þá naut rannsóknin stuðnings fíkniefnalögreglu í Dóminíska lýðveldinu.

Europol aðstoðaði við upplýsingaskipti og greiningar til að bera kennsl á grunaða og kortleggja uppbyggingu brotahópsins á meðan Eurojust studdi lagalegt samstarf milli ríkja.

Rannsókn heldur áfram

Lögregla vinnur nú að úrvinnslu haldlagðra gagna og yfirheyrslum í öllum viðkomandi löndum. Við leit í fangaklefum fundust símtæki og annar rafbúnaður sem grunur leikur á að hafi verið notaður til áframhaldandi skipulagningar brotastarfsemi. Að rannsókninni hér á landi koma embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, héraðssaksóknari, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóri ásamt tollgæslu og fangelsismálayfirvöldum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila