
Evrópusambandið gæti staðið frammi fyrir alvarlegum skorti á jarðgasi í vetur ef miklir kuldar ganga yfir álfuna og truflanir verða á gasflutningum. Samkvæmt nýrri skýrslu evrópskra gasflutningsfyrirtækja gæti skorturinn numið 12–15% af eftirspurn við erfiðar aðstæður. Gasbirgðir sambandsins eru jafnframt mun minni en á sama tíma í fyrra og verð á jarðgasi hefur nær þrefaldast frá því átökin við Íran hófust í lok febrúar. Euronews greinir frá þessu.
Viðvörunin kemur fram í skýrslu Evrópska samtakanna um flutningskerfi jarðgass, ENTSOG. Þar er farið yfir afhendingaröryggi jarðgass í Evrópu á komandi vetri og áhrif hugsanlegra truflana á innflutningi.
Samkvæmt skýrslunni voru gasbirgðastöðvar ESB aðeins 72% fullar 1. október, samanborið við 83% á sama tíma í fyrra.
Gasbirgðir mun minni en fyrir ári
Evrópuríki hafa átt erfitt með að fylla gasbirgðastöðvar sínar fyrir veturinn vegna mikillar eftirspurnar, hás verðs og takmarkaðs framboðs á heimsmarkaði.
Í skýrslunni eru skoðaðar tvær sviðsmyndir þar sem gert er ráð fyrir að ekkert jarðgas berist um leiðslur frá Rússlandi. Evrópusambandið hefur að mestu hætt innflutningi á rússnesku jarðgasi en undantekningar eru enn til staðar, meðal annars fyrir Ungverjaland og Slóvakíu.
Samkvæmt ENTSOG gæti samspil mikilla vetrarkulda og truflana á mikilvægum gasflutningsleiðum skapað verulegan skort á ákveðnum svæðum innan sambandsins. Sérstaklega er varað við því að alvarlegar truflanir á stærstu gasmannvirkjum á hafi úti, samhliða algerri stöðvun innflutnings frá Alsír, gætu ógnað orkuöryggi Evrópu.
Birgðir gætu farið niður í 13% í mars
Skýrslan sýnir að jafnvel við eðlilegar vetraraðstæður gæti takmarkað framboð á fljótandi jarðgasi, LNG, leitt til þess að birgðastaða Evrópu færi niður í aðeins 13% í mars 2027. Slík staða gæti haft veruleg áhrif á atvinnulífið, sérstaklega fyrirtæki sem nota mikið magn af jarðgasi við framleiðslu.
Þá gætu stjórnvöld þurft að grípa til ráðstafana til að draga úr gasnotkun og fyrirtæki neyðst til að minnka framleiðslu. Í skýrslunni kemur fram að hátt gasverð geti einnig dregið úr eftirspurn, þar sem fyrirtæki og aðrir stórnotendur dragi úr notkun þegar kostnaðurinn verður of mikill.
ENTSOG leggur því áherslu á að tryggja nægilegan innflutning á fljótandi jarðgasi og nýta fyrstu mánuði vetrarins til að halda birgðum eins miklum og kostur er.
Lokun Hormússunds hefur áhrif á gasmarkaðinn
Staðan hefur versnað vegna átaka Bandaríkjanna og Ísraels við Íran, sem hófust 28. febrúar. Takmarkanir á siglingum um Hormússund hafa dregið verulega úr útflutningi á fljótandi jarðgasi frá Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Um 20% af heimsviðskiptum með fljótandi jarðgas fara að jafnaði um sundið.
Þótt aðeins um 8% af gasinnflutningi Evrópu komi beint frá Katar hefur röskunin haft áhrif á allan heimsmarkaðinn. Evrópa og Asíuríki keppa nú um það takmarkaða magn sem er í boði og hefur samkeppnin stuðlað að miklum verðsveiflum.
Bandaríkin eru orðin stærsti birgir Evrópusambandsins af fljótandi jarðgasi eftir að sambandið dró verulega úr kaupum á rússnesku gasi.
Austur- og Suðaustur-Evrópa í mestri hættu
Áhætta vegna mögulegs gasskorts er mismikil eftir ríkjum og landsvæðum. Vestur-Evrópa hefur notið góðs af nýjum móttökustöðvum fyrir fljótandi jarðgas og aðgangi að gasleiðslum frá meðal annars Noregi. Ríki í Mið-, Austur- og Suðaustur-Evrópu sem ekki hafa beinan aðgang að sjó eru hins vegar háðari flutningi jarðgass um leiðslukerfi annarra ríkja.
Ef truflanir verða á mikilvægum gasleiðslum, svo sem Europipe 2 í Norðursjó eða leiðslum frá Alsír, gæti flutningsgeta kerfisins ekki nægt til að koma gasi frá vestari hluta Evrópu til austari ríkjanna. Í Suðaustur-Evrópu gæti skorturinn orðið allt að 12% á þeim dögum þegar eftirspurn er mest. Slík staða gæti reynt verulega á samstöðu aðildarríkjanna, sérstaklega ef stjórnvöld ákveða að forgangsraða eigin íbúum og atvinnulífi umfram gasafhendingar til nágrannaríkja.
ESB slakar á kröfum um gasbirgðir
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur veitt aðildarríkjunum tímabundinn sveigjanleika varðandi birgðastöðu fyrir veturinn. Í stað hefðbundins markmiðs um að gasbirgðastöðvar séu 90% fullar fyrir 1. nóvember er ríkjum nú heimilað að miða við 75–80%. Markmiðið er að koma í veg fyrir að ríkin keppist við að kaupa gas á sama tíma og þrýsti þannig verðinu enn hærra.
Framkvæmdastjórnin hefur jafnframt hvatt aðildarríkin til að auka birgðir eins og kostur er í upphafi vetrar og tryggja samvinnu ef grípa þarf til takmarkana á gasnotkun.
Gasverð hefur nær þrefaldast
Verð á jarðgasi á evrópska TTF-markaðnum, sem er helsta viðmiðunarverð jarðgass í Evrópu, var á bilinu 79,80 til 80,22 evrur á megavattstund í dag. Það er nær þrefalt hærra en áður en átökin við Íran hófust í lok febrúar.
Hátt verð hefur þegar aukið kostnað fyrirtækja og heimila og frekari hækkanir gætu haft víðtæk áhrif á efnahag Evrópuríkja.
Skýrsla ENTSOG sýnir að orkuöryggi Evrópusambandsins er enn viðkvæmt þrátt fyrir umfangsmiklar breytingar á gasinnflutningi undanfarin ár. Komi saman miklir kuldar, takmarkað framboð á fljótandi jarðgasi og truflanir á gasleiðslum gætu einstök Evrópuríki staðið frammi fyrir verulegum orkuskorti á komandi vetri.
