
Alexandria Ocasio-Cortez, þingmaður Demókrataflokksins, og Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, hafa sætt harðri gagnrýni eftir að sjónvarpsmyndir sýndu þau brosa og virðast hlæja saman við minningarathöfn um fórnarlömb hryðjuverkaárásanna 11. september. Þetta kemur fram í frétt Fox News.
Myndskeiðið var tekið þegar nöfn fórnarlamba árásanna voru lesin upp við Ground Zero í neðri hluta Manhattan. Útsendingin færðist frá syrgjandi ungum manni yfir á Mamdani og Ocasio-Cortez þar sem þau virtust skiptast á léttum orðum og hlæja. Ekki heyrðist hvað þau sögðu.
„Ground Zero er heilagur staður“
Ummælin og myndskeiðið vöktu sterk viðbrögð á samfélagsmiðlum og hafa þúsundir krafist að þeim verði vikið úr embættum sínum.
Þá gagnrýndi Wesley Hunt, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Texas Mamdani og Cortez harðlega vegna framkomu þeirra. Hann sagði vera stund og stað fyrir stjórnmál en Ground Zero væri ekki sá staður.
„Ground Zero er heilagur staður,“ sagði Hunt.
Meghan McCain, dóttir Johns McCain, fyrrverandi öldungadeildarþingmanns, spurði hvers vegna þau tvö væru að hlæja við athöfnina.
Heldur því fram að myndbandið sé tekið úr samhengi
Michael Ragusa, sem hefur starfað við öryggisgæslu fyrir Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóra New York, hafnaði því hins vegar að myndskeiðið sýndi óviðeigandi hegðun.
Hann sagðist hafa staðið við hlið þeirra allan tímann og að myndavélin hefði einfaldlega náð því þegar Ocasio-Cortez heilsaði Mamdani.
Ragusa sagði jafnframt að fleiri stjórnmálamenn, bæði úr röðum Repúblikana og Demókrata, hefðu talað saman og hlegið á svæðinu.
Mamdani þegar umdeildur meðal fjölskyldna fórnarlamba
Viðvera Mamdani við minningarathöfnina hafði þegar vakið deilur áður en myndskeiðið fór í dreifingu. Hluti aðstandenda fórnarlamba 11. september hafði hvatt hann til að halda sig frá athöfninni og safnað undirskriftum þess efnis.
Inna Vernikov, borgarfulltrúi Repúblikanaflokksins í New York, gagnrýndi Mamdani harðlega og sagði að á sama tíma og fjölskyldur fórnarlamba grétu hefði hann staðið og hlegið. Mamdani sást þó einnig á öðrum myndum frá athöfninni standa alvarlegur og þögull meðal annarra embættismanna.
Ekki liggur fyrir hvað Mamdani og Ocasio-Cortez ræddu sín á milli á þeirri stundu sem myndskeiðið var tekið og hvorugt þeirra hafði svarað fyrirspurn Fox News um málið þegar fréttin var birt.
