
Magnús Magnússon ræddi við Ara Jónsson söngvara og tónlistarmann sem var meðal annars í hinni feikivinsælu hljómsveit Roof Tops, í þættinum Gömlu góðu lögin um íslensk dægurlög, plötur sem hann hefur tekið þátt í og ýmis lög sem tengjast íslenskri tónlistarsögu. Í þættinum voru spiluð nokkur lög og Ari sagði frá uppruna þeirra, höfundum og aðstæðum þegar þau voru tekin upp. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Skuggasveinar
Í upphafi þáttar var rætt um plötu með hljómsveitinni Skuggasveinum en platan kom út árið 2010. Ari sagði frá því að þar hefðu komið saman reyndir tónlistarmenn og nefndi meðal annars Magnús Kjartansson og Vilhjálm Guðjónsson sem komu aðplötunni ásamt mörgum fleirum en það var Gunnar Þórðarson átti stóran þátt í lagasmíðum og uppsetningu verkefnisins. Í viðtalinu kom fram að platan hafi ekki fengið mikla spilun síðustu ár þrátt fyrir að efnið standi enn fyrir sínu.
Lag gefið út í tilefni af gullbrúðkaupi tónskáldsins
Síðar í þættinum var spilað lagið Dúra eftir Þröst Sigtryggsson með texta eftir Gylfa Ægisson heitinn. Ari sagði frá því að platan sem lagið birtist á hafi verið gefin út 22. maí árið 2007 í tilefni gullbrúðkaups Þrastar og eiginkonu hans. Lagið var því samið sem persónuleg kveðja til hennar og tengist þessum tímamótum í lífi þeirra hjóna.
Sjómannalög og íslensk tónlistarhefð
Í þættinum var einnig fjallað um plötu þar sem þekkt íslensk sjómannalög voru tekin upp í nýjum búningi. Á henni söng Ari meðal annars lagið Þú ert vagga mín haf. Slík lög hafa lengi verið hluti af íslenskri tónlistarhefð og tengjast sjómennsku sem hafði um langan tíma mikil áhrif á íslenskt samfélag.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
