Atli: Grænlendingar vilja stýra sjálfir samskiptum sínum við Bandaríkin

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Atla Lillendahl ,framkvæmdastjóra sem búsettur var í 30 ár á Grænlandi í síðdegisútvarpinu um hvernig grænlensk stjórnmál hafi tekið nýja stefnu í samskiptum við Bandaríkin. Hann sagði að sífellt fleiri stjórnmálamenn teldu tímabært að Grænland skilgreindi sjálft eigin hagsmuni gagnvart Bandaríkjunum í stað þess að Danmörk færi áfram með það hlutverk. Að hans mati er sú krafa bein afleiðing af auknu hernaðarlegu og efnahagslegu mikilvægi Grænlands. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Krefjast skýrari stefnu gagnvart Bandaríkjunum

Atli sagði að þótt Bandaríkin hefðu lengi haft víðtækar heimildir á Grænlandi samkvæmt varnarsamningum við Dani, sem hefði heimilað Bandaríkjamönnum að setja upp 17. herstöðvar á Grænlandi, hefði umræðan tekið nýja stefnu. Nú færist áherslan í auknum mæli yfir á það hvernig Grænland sjálft vilji haga samskiptum sínum við Bandaríkin.

Hann sagði að stjórnarandstöðuflokkar, einkum Naleraq, hefðu kallað eftir því að ríkisstjórnin setti fram skýra stefnu um samskiptin við Bandaríkin og skilgreindi hvaða hagsmunum Grænland hygðist fylgja. Að hans mati dygði ekki lengur að láta Danmörku fara með málið fyrir hönd Grænlands.

Grænland í lykilstöðu í vörnum Norður-Atlantshafs

Atli sagði að landfræðileg staða Grænlands gerði landið að lykilþætti í öryggis- og varnarkerfi Bandaríkjanna. Hann taldi líklegt að Bandaríkjamenn myndu efla umsvif sín á Grænlandi á næstu árum, meðal annars með aukinni hernaðarlegri viðveru og endurnýtingu eldri mannvirkja.

Hann benti jafnframt á að samningaviðræður stæðu yfir milli danskra og bandarískra stjórnvalda um aukin umsvif Bandaríkjanna. Samhliða því væri sífellt skýrara að Grænlendingar vildu sjálfir koma að ákvörðunum sem vörðuðu framtíð landsins.

Sjálfstæðari utanríkisstefna í mótun

Atli sagði að afstaða nokkurra stærstu stjórnmálaflokka hefði færst í átt að auknu sjálfstæði og nánara samstarfi við Bandaríkin. Jafnframt væri vaxandi áhugi á auknu samstarfi við Ísland og önnur nágrannaríki, þar sem Grænlendingar vildu eiga bein samskipti við önnur ríki í stað þess að Danmörk talaði alltaf fyrir þeirra hönd.

Þrýstingur á grænlensk stjórnvöld verður sífellt meiri eftir því sem alþjóðlegt mikilvægi landsins eykst. Hann taldi að þróunin stefndi í þá átt að Grænland myndi í auknum mæli móta eigin utanríkis- og öryggisstefnu, óháð dönskum stjórnvöldum, samhliða því að Bandaríkin ykju áhrif sín á Norðurslóðum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila