
Júlíus Valsson læknir skrifar:
Flugfreyjur og flugmenn virðast vera í meiri hættu á að deyja úr krabbameinum sem tengd hafa verið jónandi geislun en fólk í öðrum starfsgreinum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem birt var í JAMA Internal Medicine.
Rannsakendur við Harvard Medical School og Brigham and Women’s Hospital skoðuðu tæplega 13 milljónir dánarvottorða í Bandaríkjunum á árunum 2020–2024 og báru saman 503 starfsgreinar. Þar á meðal voru rúmlega 14 þúsund flugmenn og um 7 þúsund flugfreyjur og flugþjónar.
Flugfólk með hæsta hlutfallið
Flugfreyjur og flugþjónar voru efst allra starfshópa hvað varðaði hlutfall dauðsfalla af völdum krabbameina sem tengd eru geislun og flugmenn í öðru sæti. Um 6,9% allra dauðsfalla meðal flugáhafna í farþegarými og 6,7% meðal flugmanna voru af þessum krabbameinum. Jafnvel starfsmenn sem vinna með geislavirk efni, svo sem kjarnatæknar, voru neðar á listanum.
Í aukinni hættu á hvítblæði
Eftir leiðréttingu fyrir meðal annars aldri, kyni, menntun og öðrum þáttum voru líkurnar á dauðsfalli af völdum geislunartengds krabbameins um 50% meiri hjá flugfreyjum og flugþjónum og 36% meiri hjá flugmönnum en hjá öðrum starfshópum. Aukning sást meðal annars í dauðsföllum vegna brjóstakrabbameins, krabbameina í miðtaugakerfi, blöðruhálskirtilskrabbameins og sortuæxla. Flugmenn reyndust einnig í aukinni hættu á að deyja úr hvítblæði.
Ástæðan kann að hluta að vera geimgeislun, sem verður mun sterkari eftir því sem flogið er hærra. Flugáhafnir fá að jafnaði um 3–6 millisievert af geimgeislun á ári, eftir flugleiðum, og eru meðal þeirra starfsstétta sem fá mesta jónandi geislun við störf sín.
Truflun í dægursveiflu gæti haft áhrif
Í meðfylgjandi umsögn í JAMA Internal Medicine benda Catherine Olsen og Ken Karipidis þó á að málið sé flóknara. Flugmenn verða einnig fyrir útfjólublárri geislun í stjórnklefa og bæði flugmenn og aðrir áhafnarmeðlimir vinna gjarnan næturvinnu og fara reglulega yfir tímabelti. Truflun á dægursveiflu gæti því einnig átt þátt í aukinni áhættu.
Rannsóknin sýnir tengsl en sannar ekki að geimgeislun valdi aukinni krabbameinsdánartíðni þ.e. hún sannar ekki orkasamband. Höfundarnir telja niðurstöðurnar engu að síður nægilega sterkar til að ástæða sé til að endurskoða geislavarnir og vöktun flugáhafna. Í Bandaríkjunum eru flugmenn og flugfreyjur viðurkennd sem starfsfólk sem verður fyrir jónandi geislun, en þar eru hvorki almenn lögbundin geislunarmörk né regluleg geislamæling fyrir starfsstéttina.
