Aukin krabbameinsáhætta eftir sumar tegundir tæknifrjóvgunar

Júlíus Valsson læknir skrifar:

Tæknifrjóvgun hefur á fáeinum áratugum orðið sjálfsagður hluti nútímalæknisfræði og gert milljónum para kleift að eignast börn. Ný stór dönsk rannsókn, sem birtist í JAMA, vekur þó spurningar um hvort allar aðferðirnar séu jafn áhættulitlar þegar litið er til heilsu barnanna til lengri tíma.

Rannsóknin náði til rúmlega 1,08 milljóna barna sem fæddust í Danmörku á árunum 1996–2012. Þar af voru 37.228 getin með aðstoð frjósemistækni. Börnunum var fylgt eftir allt til ársins 2023, að miðgildi í um tvo áratugi.

Í heild greindist krabbamein með tíðninni 23,6 tilfelli á hver 100.000 mannár meðal barna sem getin voru með aðstoð frjósemistækni, samanborið við 18,3 tilfelli meðal annarra barna.

Það jafngilti um 26% hlutfallslegri aukningu áhættu.

Þarna þarf þó að gæta að tölunum. Tuttugu og sex prósent hljóma mikið, en krabbamein barna er sjaldgæft. Munurinn var um fimm tilfelli á hver 100.000 mannár og algild áhættuaukning því lítil.

Frystir fósturvísar skera sig úr

Athyglisverðasta niðurstaðan sneri að börnum sem fæddust eftir flutning frystra fósturvísa, FET. Þar mældist tíðni krabbameina 41,1 tilfelli á 100.000 mannár, eða meira en tvöfalt hærri en meðal barna sem ekki voru getin með aðstoð frjósemistækni.

Einnig fannst aukin áhætta eftir ICSI, eða smásjárfrjóvgun, þar sem einni sáðfrumu er sprautað beint inn í eggfrumu. Þar var tíðnin 27,9 tilfelli á 100.000 mannár og hlutfallsleg áhætta um 48% meiri.

Hefðbundin glasafrjóvgun, IVF, gaf aðra mynd. Þar var tíðnin 18,5 tilfelli á 100.000 mannár, nánast sú sama og meðal barna sem getin voru án tæknifrjóvgunar. Ekki kom fram marktæk aukning á heildaráhættu krabbameins í þeim hópi.

Frystir fósturvísar algengir á Íslandi

Þessar niðurstöður eiga sérstakt erindi til Íslands, því tæknifrjóvganir eru orðnar umtalsverður hluti allra fæðinga hér á landi.

Samkvæmt fæðingaskrá fæddust 341 barn eftir tæknifrjóvgun hjá Livio Reykjavík árið 2022, eða 7,8% allra lifandi fæddra barna á Íslandi. Tölurnar ná ekki til barna sem urðu til eftir meðferð erlendis, þar sem slíkar upplýsingar hafa ekki verið skráðar með sama hætti.

Skiptingin er sérstaklega athyglisverð í ljósi dönsku rannsóknarinnar. Af þessum 341 börnum fæddust:

  • 177 eftir uppsetningu frystra fósturvísa (FET), eða um 52%,
  • 83 eftir hefðbundna IVF, um 24%,
  • 40 eftir ICSI, um 12%,
  • 41 eftir tæknisæðingu (IUI), um 12%.

Með öðrum orðum varð rúmlega helmingur þeirra barna sem fæddust eftir frjósemismeðferð hjá Livio árið 2022 til eftir FET, einmitt þeirri aðferð sem tengdist mestri áhættuaukningu í dönsku rannsókninni.

Umfang meðferðanna hefur jafnframt aukist. Árið 2022 voru framkvæmdar 604 glasafrjóvgunarmeðferðir, 205 tæknisæðingar og 810 uppsetningar fósturvísa hjá Livio. Uppsetningartalan nær bæði til ferskra og áður frystra fósturvísa og því verður ekki ráðið af henni einni hversu margar uppsetninganna voru FET. Alls fengu 725 einstaklingar eða pör slíka þjónustu það ár.

Tengsl eru ekki sönnun um orsök

Danska rannsóknin sýnir tengsl en getur ekki sannað að frysting fósturvísa eða ICSI valdi krabbameini. Undirliggjandi ófrjósemi foreldra, erfðir, aldur eða aðrir óþekktir þættir gætu átt hlut að máli.

Höfundarnir báru niðurstöðurnar þó einnig saman við börn kvenna með sögu um ófrjósemi og niðurstöðurnar hurfu ekki við þann samanburð. Það styrkir rökin fyrir því að rannsaka þurfi meðferðina sjálfa frekar.

Ísland þarf að fylgjast vel með

Fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu er þetta því rannsókn sem vert er að fylgjast með. Þegar meira en sjö af hverjum hundrað börnum fæðast eftir tæknifrjóvgun og frystir fósturvísar standa að baki stórum hluta þeirra skiptir máli að langtímaöryggi meðferðanna sé rannsakað áfram.

Krabbamein eru mjög sjaldgæf hjá börnum

Ástæða er samt engin til ótta hjá foreldrum. Afar mikilvægt er að hafa í huga að krabbamein meðal barna eru áfram mjög sjaldgæf. En þegar aðferð er orðin jafn útbreidd og FET á Íslandi getur jafnvel lítil algild áhættuaukning haft lýðheilsulega þýðingu. Þá er rétt að spyrja hvað skýri muninn. Er það frystingin sjálf, ræktun fósturvísanna, hormónameðferðin, eiginleikar foreldranna eða eitthvað sem enn hefur ekki verið greint?

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila