
Bandaríska dómsmálaráðuneytið telur að færsla James Comey, fyrrverandi forstjóra FBI, birti með tölunum „86 47“ hafi með hlutlægum hætti mátt skilja sem hótun um að Donald Trump Bandaríkjaforseti yrði drepinn. Ráðuneytið hafnar jafnframt ásökunum Comeys um að ákæran gegn honum sé pólitísk hefnd. Þetta segir í frétt Zerohedge.
Comey birti í maí 2025 ljósmynd á Instagram af skeljum sem raðað hafði verið þannig að þær mynduðu tölurnar „86 47“. Hann hefur verið ákærður fyrir 2 alríkisglæpi vegna meintrar hótunar gegn lífi forsetans og miðlunar hótunar.
Tölurnar taldar vísa til Trump
Hugtakið „86“ er meðal annars notað í ensku um að losa sig við eða fjarlægja einhvern en hefur einnig verið notað í samhengi þar sem átt er við að drepa viðkomandi. Talan 47 hefur verið túlkuð sem vísun til Trump sem er 47. forseti Bandaríkjanna.
Comey hefur skýrt frá því að hann hafi fundið skeljarnar á strönd og tekið mynd af þeim. Hann taldi að um pólitísk skilaboð væri að ræða og birti myndina sem pólitíska yfirlýsingu gegn Trump.
Hann eyddi færslunni síðar og sagðist þá ekki hafa vitað að „86“ gæti haft merkingu sem tengdist ofbeldi.
Dómsmálaráðuneytið hafnar þeirri málsvörn að málið snúist einfaldlega um pólitíska tjáningu. Í greinargerð sem lögð var fyrir dómstól 18. ágúst segir að vart verði um það deilt að hlutlægur áhorfandi gæti skilið færsluna sem skilaboðin „Drepið Trump forseta“.
Comey segir ákæruna pólitíska hefnd
Comey hefur farið fram á að ákærunni verði vísað frá og heldur því meðal annars fram að um hefndaraðgerð og sértæka saksókn sé að ræða. Hann hefur einnig krafist aðgangs að gögnum kviðdóms og farið fram á að tiltekin sönnunargögn verði útilokuð.
Saksóknarar halda því hins vegar fram að birting myndarinnar hafi tengst kynningu á skáldsögu Comeys, FDR Drive. Þar fjallar hann um alríkissaksóknara sem reynir að stöðva áhrifamikinn hægrisinnaðan fjölmiðlamann en orð hans verða fylgjendum hans hvatning til árása á andstæðinga.
Saksóknari segist ekki hafa sætt þrýstingi
W. Ellis Boyle, alríkissaksóknari í málinu, segir í sérstakri yfirlýsingu að enginn hafi þrýst á hann um að ákæra Comey. Ákvörðunin hafi byggst á sjálfstæðu mati hans.
Kviðdómur samþykkti ákæruna 28. apríl. Lögmönnum Comeys hefur verið gefinn frestur til 1. september til að svara greinargerðum stjórnvalda.
Ef Louise W. Flanagan alríkisdómari heimilar að málið haldi áfram er gert ráð fyrir að Comey verði formlega leiddur fyrir dóm 30. september og að réttarhöld hefjist 21. október.
