Bandarísk fyrirtæki geta nú fengið allt að 10 milljónir dala í lán

Bandarísk stjórnvöld hafa rýmkað verulega lánamöguleika fyrirtækja með breytingum á lánakerfi bandarísku smáfyrirtækjastofnunarinnar, Small Business Administration. Frá 4. júlí hafa því fyrirtæki geta sameinað 2 lánaúrræði stofnunarinnar og fengið þannig allt að 10 milljónir dala í fjármögnun.

Breytingin er liður í aðgerðum ríkisstjórnar Donalds Trump til að tryggja fyrirtækjum betri aðgang að fjármagni til rekstrar og fjárfestinga.

Hámarkið áður 5 milljónir dala

Um er að ræða 7(a)- og 504-lánaúrræði SBA. Fyrra úrræðið býður fyrirtækjum fjármögnun upp á allt að 5 milljónir dala en hámark 504-lána er 5,5 milljónir dala.

Áður gátu fyrirtæki þó aðeins fengið samtals 5 milljónir dala með því að nýta bæði úrræðin. Með breytingunni geta þau nú fengið allt að 10 milljónir dala samtals.

Þar með hefur hámarksfjármögnun fyrirtækja sem nýta bæði úrræðin í reynd tvöfaldast.

Auðvelda fyrirtækjum að sækja fjármagn

SBA tilkynnti einnig 30. júlí um breytingar á vefkerfum sínum sem eiga að auðvelda smáfyrirtækjum og framleiðendum að sækja um fjármögnun.

Markmiðið er meðal annars að einfalda rafræna afgreiðslu SBA-tryggðra lána og gera lánveitendum kleift að koma fjármagni hraðar til fyrirtækja.

Breytingarnar koma á sama tíma og háir vextir halda áfram að hafa áhrif á bandarísk smáfyrirtæki. Bill Dunkelberg, aðalhagfræðingur National Federation of Independent Business, segir háa vexti og hóflegan hagvöxt valda því að fyrirtækjaeigendur fari varlega í ráðningar og fjárfestingar.

Gjaldþrotum smáfyrirtækja fjölgaði

Tölur American Bankruptcy Institute sýna jafnframt að málum smáfyrirtækja samkvæmt sérstöku endurskipulagningarúrræði 11. kafla bandarísku gjaldþrotalaganna fjölgaði um 24% í júlí frá sama mánuði í fyrra.

Alls voru 234 slík mál skráð í mánuðinum þrátt fyrir að gjaldþrotatilfellum fyrirtækja í Bandaríkjunum hafi almennt fækkað.

Rýmkun lánamöguleikanna er ætlað að auðvelda bandarískum fyrirtækjum að tryggja sér fjármagn á sama tíma og háir vextir halda aftur af fjárfestingum og rekstri.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila