
Bandaríska heilbrigðisráðuneytið, HHS, hefur hafið umfangsmikla skoðun á mögulegum heilsufarsáhrifum rafsegulsviða og geislunar frá þráðlausri fjarskiptatækni. Robert F. Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra segir sérstaka athygli beinast að áhrifum á börn, notkun tækninnar í skólum og langtímaáhrifum uppsafnaðrar geislunar. Þetta kemur fram í umfjöllun Zerohedge.
Ráðuneytið hefur óskað eftir upplýsingum frá vísindamönnum, stofnunum og almenningi um áhrif rafsegulsviða, þar á meðal útvarpstíðnigeislunar sem notuð er í þráðlausum fjarskiptum.
Markmiðið er að leggja mat á fyrirliggjandi rannsóknir og undirbúa leiðbeiningar fyrir skóla og fjölskyldur.
Kennedy segir vísindarannsóknir á þessu sviði umfangsmiklar og tæknilega flóknar og að niðurstöður þeirra séu ekki alltaf auðveldar stjórnvöldum og heilbrigðisyfirvöldum til túlkunar.
Óska eftir rannsóknum og reynslu almennings
HHS óskar meðal annars eftir ritrýndum vísindarannsóknum, opinberum skýrslum og gögnum frá fyrirtækjum.
Einstaklingar geta einnig sent ráðuneytinu upplýsingar um heilsufarsleg einkenni sem þeir telja tengjast rafsegulsviðum. Þeir eru þá beðnir um að lýsa þeirri tækni sem um ræðir, hversu lengi og með hvaða hætti þeir urðu fyrir áhrifum hennar, hvaða heilsufarsáhrif þeir telja sig hafa fundið fyrir og hvort þeir hafi leitað meðferðar.
Tekið verður við upplýsingum í 30 daga frá 21. september.
Kennedy áður farið í mál vegna geislunarmarka
Kennedy hefur áður komið að dómsmálum sem tengjast mögulegum áhrifum þráðlausrar geislunar.
Árið 2021 komst alríkisáfrýjunardómstóll í Washington að þeirri niðurstöðu að bandaríska fjarskiptaeftirlitið, FCC, hefði ekki gefið fullnægjandi rök fyrir þeirri ákvörðun að halda óbreyttum viðmiðunarmörkum fyrir útvarpstíðnigeislun sem höfðu verið sett árið 1996.
Dómstóllinn beindi því til FCC að fara með fullnægjandi hætti yfir gögn um möguleg heilsufarsáhrif þráðlausrar geislunar.
Children’s Health Defense, samtök sem Kennedy var áður formaður fyrir, hafa nú höfðað nýtt mál þar sem því er haldið fram að FCC hafi ekki farið eftir fyrirmælum dómsins.
FCC segir engin afgerandi tengsl staðfest
FCC segir á vef sínum að engar vísindalegar sannanir hafi enn staðfest með afgerandi hætti tengsl milli notkunar þráðlausra tækja og krabbameins eða annarra sjúkdóma.
Kennedy segir hins vegar enn vera göt í þekkingunni sem þurfi að fylla.
Hann sagði á ráðstefnu í Washington á fimmtudag að meira en 10.000 rannsóknir hefðu verið lagðar fram í tengslum við fyrra dómsmálið.
Skýrsla væntanleg í haust
HHS vinnur nú einnig að heildarendurskoðun á regluverki um rafsegulsvið og þráðlausa geislun.
Kennedy segir niðurstöðurnar verða birtar í skýrslu í haust. Þar verður meðal annars tekið tillit til þeirra vísindagagna og annarra upplýsinga sem berast ráðuneytinu á 30 daga umsagnartímanum.
Hann segir ferlið hafa verið opnað almenningi þar sem málið kalli á vandaðar vísindarannsóknir, gagnsæi og skýr svör.
