
Þverpólitísk sendinefnd 8 þingmanna úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings heimsótti Vatíkanið og ræddi við háttsetta embættismenn kaþólsku kirkjunnar um þróun gervigreindar. Þingmennirnir hittu einnig Leó XIV páfa stuttlega en hann hefur lagt sífellt meiri áherslu á siðferðileg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif tækninnar. Greint er frá þessu á vef Politico.
Mannleg reisn og jafnrétti í forgrunni
Ro Khanna, þingmaður demókrata frá Kaliforníu, staðfesti heimsóknina við Politico. Hann sagði umræðurnar meðal annars hafa snúist um trúfrelsi, efnahagslega og geopólitíska áhættu vegna gervigreindar og þær siðferðilegu spurningar sem hröð þróun tækninnar vekur.
Tvö meginatriði hefðu verið í forgrunni, mannleg reisn og jafnrétti. Khanna sagði að menn yrðu áfram að bera ábyrgð á mikilvægum ákvörðunum sem varða meðal annars heilbrigðismál, fjármál, einstaklingsfrelsi og opinbera þjónustu.
Hann lagði jafnframt áherslu á að koma yrði í veg fyrir að sjálfvirknivæðing leiddi til fjöldaatvinnuleysis eða að gervigreind yrði notuð til að útiloka fólk frá samfélagslegri þjónustu. Þá varaði hann við því að völd yfir gögnum og reikniritum gætu safnast á hendur fárra milljarðamæringa.
Páfi varar við kapphlaupi stórveldanna
Leó XIV páfi hefur gert þróun gervigreindar að áberandi viðfangsefni. Í páfabréfi í maí hvatti hann ríki heims til að setja tækninni siðferðileg mörk til að vernda mannkynið.
Páfinn hefur varað við því að stjórnlaus þróun gervigreindar geti aukið ójöfnuð, veikt samfélagsleg tengsl og grafið undan siðferðilegri ábyrgð.
Hann hefur einnig gagnrýnt alþjóðlegt kapphlaup um yfirráð yfir öflugustu gervigreindartækninni. Bandaríkin, Kína og önnur stórveldi keppa nú um forskot á þessu sviði en páfinn hefur varað við því sem hann lýsir sem ómanneskjulegri viðleitni til að þróa sífellt öflugri tækni og ná yfirráðum yfir henni.
Vill skattleggja sjálfvirka gervigreind
Khanna hyggst leggja fram frumvarp á Bandaríkjaþingi um skattlagningu á notkun sjálfvirkra gervigreindarkerfa. Markmiðið er að skapa fjárhagslegan hvata fyrir fyrirtæki til að ráða fólk í stað þess að láta gervigreind taka störfin yfir.
Þingmennirnir ræddu jafnframt stærri spurningar um mörk tækninnar, dauðleika mannsins og hvort tækniframfarir geti einhvern tíma breytt þeim grundvallarmörkum sem mannleg tilvera býr við.
Eftir heimsóknina sendi Khanna stjórnendum stærstu tæknifyrirtækja heims bréf þar sem hann óskaði svara um hvernig fyrirtækin hyggðust samræma þróun gervigreindar sjónarmiðum um mannlega reisn og jafnrétti.
Heimsóknin til Vatíkansins var hluti af stærri Evrópuferð bandarísku þingmannanna. Þeir ræddu meðal annars vaxandi áhrif Kína á alþjóðavettvangi í Berlín og héldu þeim viðræðum áfram í Vatíkaninu og síðar með ítölskum stjórnvöldum.
