Bandarískur þingmaður: „Af hverju hefur enginn rannsakað allar aukaverkanirnar?“

Bandaríska þingkonan Marjorie Taylor Greene gagnrýnir harðlega sinnuleysi yfirvalda við að rannsaka allar þær tilkynningar um aukaverkanir sem borist hafa til öryggiskerfisins VAERS (mynd skjáskot Twitter).

Skaðlegum aukaverkunum af völdum „Covid-bóluefna“ fer fjölgandi. En yfirvöldum virðist standa á sama. Bandaríska þingkonan Marjorie Taylor Greene fulllyrti það á hringborðsráðstefnu í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem til umræðu var, hvernig yfirvöld meðhöndluðu hinn svonefnda heimsfaraldur.

Marjorie Taylor Greene er langt í frá ánægð með afskiptaleysi yfirvalda á afleiðingum mRNA bóluefnanna. Hún spurði „hvers vegna öllum virtist vera sama um fjölda aukaverkana, dauðsfalla og meiðsla sem opinberlega er tilkynnt um eftir bólusetningu?“

Yfir 1,5 milljónir tilkynningar um skaðlegar aukaverkanir

Öryggiseftirlitskerfið VAERS, þar sem hægt er að tilkynna og skrá aukaverkanir af bóluefnunum, hefur tekið á móti meira en 1,5 milljónir tilkynningum.

„En öllum virðist vera sama um það“ segir þingkona repúblikana, Marjorie Taylor Greene, sem vakti þessi og önnur mál varðandi Covid-faraldurinn:

„Það hefði átt að treysta á náttúrulegt ónæmi en einhverra hluta vegna var allri skynsemi og þekkingu hent út um gluggann. Vísindamenn hafa sýnt fram á, að bólusett fólk er í að minnsta kosti helmingi meiri hættu á að smitast af covid en þeir, sem eru óbólusettir og þeir sem eru með náttúrulegt ónæmi.“

Ekki hægt að sniðganga allar þessar tilkynningar um skaðlegar aukaverkanir

„En það sem virkilega er reiðarslag fyrir mig er eftirfarandi: Tilkynntar hafa verið yfir 1,5 milljónir aukaverkanir af Covid bóluefninu í gegnum VAERS kerfið og enginn virðist vilja athuga um hvað þessi bólusetningarskaði og dauðsföll snúast. Þetta er bara ekki eitthvað sem hægt er að hunsa.“

Marjorie Taylor Greene benti einnig á, að bandarísk stjórnvöld störfuðu með fyrirtækjum á samfélagsmiðlum við að ritskoða aðrar skoðanir á covid. Þeir bjuggu til samstöðu sem var í raun ekki raunveruleg.“

Hér fyrir neðan má sjá myndbút með spurningum Ms. Greene og þar fyrir neðan um tilkynningarkerfið VAERS og öll umræðan á myndbandi þar fyrir neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila