BANDERO GERÐIR AÐ FÓRNARLÖMBUM Í RÚV

Sigurjón Þórðarson skrifar:

Viðtöl og umfjöllun RÚV um hlutskipti skipsverja á Bandero í kvöld var vægast sagt furðuleg. Það virtist nánast gleymt að skipsverjar Bandero settu íslenska sjómenn á hvalveiðiskipi í hættu með því að reyna að setja net í skrúfu skipsins og neituðu að hlýða fyrirmælum Landhelgisgæslunnar.

Skipsverjar fengu í upphafi fréttar að setja á langa og tilfinningnæma ræðu um hvalskurð og í lok fréttarinnar fengu þeir að barma sér út í eitt vegna svengdar og þreytu. Engu að síður þá liggur það fyrir að mæddu skipsverjarnir svöngu settu sérsveitarmenn í stórhættu við að þurfa að að fara um borð í skipið á 15 hnúta hraða.

Eflaust eru einhverjir skipsverjum Bandero nytsamir sakleysingar en tilgangur aðgerða Sea shepherd með þessari uppákomu var ekki að bjarga hvölum heldur að safna peningum í sjóði Paul Watson

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila