
Endurtekið vandamál vegna „grænu umskiptanna“ er að tæknin sem tekin er í notkun er enn hvorki fullþróuð né reynd sem hefur alvarlegar og neikvæðar afleiðingar í kjölfarið. Á sviði umskipta jarðefnabíla yfir í rafbíla kemur þetta sérstaklega skýrt í ljós. Á sviði umskifta yfir í vindorku er hægt að ræða um stórslys. Tæknigallar í túrbínum vindmyllnanna kosta hundruðum milljarða króna og mun sá kostnaður á endanum lenda á raforkuneytendum.
Samnytt greinir frá því, hvernig Siemens Gamesa á í víðtækum tæknilegum vandamálum með nokkrar tegundir túrbína í vindmyllum. Má rekja vandamálin til þess, að óþróuð tækni var tekin í notkun í flýti undan vendi loftslagsstefnu heimsendamanna og einnig var öryggið látið sitja á hakanum vegna eftirvæntinga á skjótum gróða. Siemens Energy vinnur að því að laga bernskuvandamálin sem er ákaflega dýrt að laga eftir á og hefðu átt að vera leyst áður en tæknin var sett á markaðinn.
Miklu verra en óttast var
Forstjóri fyrirtækisins, Bjørn Einar Brath, segir við Ny Teknik að fyrst hafi þurft að verja tíma og fjármagni til að skapa yfirsýn yfir hversu umfangsmikil vandamálin voru. Kom þá í ljós að þau voru mun umfangsmeiri en óttast var. Vandamálin hefðu bæði verið umfangsminni og kostað minna ef þau hefðu uppgötvast á rannsóknar- og þróunarstigi. Bratt segir:
„Við höfum greint alþjóðlegt vandamál með sumum af túrbínum af gerðinni Games 4.x og 5.x. Það varðar hönnum skrúfublaðanna og lagera. Nefnd vinnur að því að leysa vandamálin. Það mun taka tíma og það er dýrt.”
Keyptu inn þjónustu í staðinn fyrir að þróa sjálfir
Til þess að þetta gengi hratt fyrir sig, þá kaus Siemens að sleppa algjörlega eigin rannsóknar- og þróunarstigi og kaupa tæknina með því að kaupa spænska fyrirtækið Gamesa og treysta á, að verkfræðingarnir þar hefðu unnið fullkomið starf. Það mat reynist nú rangt og dýrt.
Það er smá heppni í óheppninni að því leyti, að þessar hverflategundir hafa hingað til eingöngu verið notaðar fyrir vindmyllur á landi. Það hefði verið ærið dýrar að laga samsvarandi vandamál á hafi úti. Áætlanir eru uppi um að setja Gamesa túrbínur í notkun vindmylla á hafi en þær hafa enn ekki verið reistar. Kostnaður við flýtileiðina verður mjög mikill fyrir Siemens. Að sögn Brath er það a.m.k. jafnvirði rúmlega 20 milljarða sænskra króna. Sá kostnaður fer beint inn á rafmagnsreikning viðskiptavinarins.
Hefur áhrif á vindorkuver í mörgum löndum
Vandamálin eru til staðar í túrbínum vindorkuvera í mörgum löndum. Aðeins í Noregi er talið að endurbyggja þurfi nokkur hundruð vindmyllur. Óljóst er hversu margar vindmyllur þarf að endurbyggja í Svíþjóð. Hversu margir eiga í hlut á heimsvísu er ekki gefið upp í tölum en sagt að gallarnir snerta um þriðjung vindorku á landi, sem fyrirtækið á og rekur.
Siemens vill fullvissa hlutaðeigandi um, að engin hætta sé á fallandi snúningsblöðum eins og gerst hefur í nokkrum tilvikum. Aðalvandamálið er þess í stað að skrúfan hættir að snúast og skilar ekki því rafmagni sem hún á að gera.
Aukið almenningsálit gegn vindorku
Hjá Siemens gera þeir sér grein fyrir því, að það sem hefur gerst gefur ekki fyrirtækinu aðeins slæmt orðspor heldur hefur það einnig áhrif á almenningsálitið. Sífellt fleiri neikvæðar raddir heyrast gegn óviðunandi ágengni vindorkuvera í nærumhverfinu. Brath segir stöðuna „vandræðalega” og búið er að afskrá Siemens Gamesa úr kauphöllum. Meiningin er að tapið lendi á því fyrirtæki svo hluthafar móðurfélagsins, Siemens Energy, komist undan.
arf að græða á meðan það er í gang
Fyrir utan að uppfylla óskir stjórnmálamanna, þá þarf Siemens líka sýna hagnað. Byggingar vindorkuvera eru núna stöðvaðar víða með staðbundnum ákvörðunum og ef sú þróun heldur áfram, þá geta fyrirtæki eins og Siemens staðið uppi með mikinn þróunarkostnað, vegna tækni sem ekki er hægt að selja. Brath útskýrir:
„Við verðum að fá fleiri hverfla í stærra framleiðslumagni svo við getum þénað meira, ekki bara haft háan þróunarkostnað og búið til frumgerðir.”
Hér að neðan er fyrsti hlutinn í heimildamynd Samnytt um vindorkuna:
