
BBC hefur sætt mikilli gagnrýni eftir að miðillinn birti umfjöllun þar sem vinsæl tíska með einföldum og náttúrulegum útlítandi gervinöglum var meðal annars tengd við stéttaskiptingu og fegurðarviðmið sem sögð eru eiga rætur í yfirburðahyggju hvítra. Gagnrýnendur saka breska ríkisfjölmiðilinn um að gera pólitískt deilumál úr persónulegu vali kvenna á útliti. Þetta segir í umfjöllun GB News.
Umfjöllun BBC snerist um auknar vinsældir gervinagla sem líkjast náttúrulegum nöglum og tengjast svokölluðum „quiet luxury“, eða látlausum lúxus, sem hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum.
Þar var jafnframt fjallað um þá skoðun að þegar látlaust útlit væri hafið upp sem sérstaklega fágað eða smekklegt gæti það haft áhrif á hvernig litríkari og meira skreyttar neglur væru metnar.
Segir látlausa tískuna ýta undir einsleitni
Kristina Rodulfo, blaðamaður sem sérhæfir sig í fegurð og tísku, sagði við BBC að þróunin tengdist bæði stétt og kynþætti.
Hún sagði skrautlegar neglur eiga sér langa sögu meðal svartra, fólks af rómönskum uppruna og asískra samfélaga og gagnrýndi þá hugmynd að látlausar neglur væru sérstaklega „glæsilegar“ eða „smekklegar“.
„Þessi tíska ýtir í raun undir auða ásýnd og ákveðna einsleitni og þurrkar út menningu og sjálfsmynd sem skiptir svört og brún samfélög svo miklu máli,“ sagði Rodulfo.
Hún sagði jafnframt að lýsingar á borð við „glæsilegt“ og „smekklegt“ væru oft notaðar sem fegrunarorð yfir fegurðarviðmið sem viðhaldi hugmyndum um yfirburði hvítra.
„Það er orðið þreytandi að gera allt að pólitísku deilumáli“
Ummælin og ákvörðun BBC um að fjalla um málið vöktu hörð viðbrögð.
Sharron Davies, fyrrverandi ólympíusundkona og nú barónessa, sagði greinina dæmigerða fyrir það sem BBC væri orðið.
„Þessi sundrandi þvæla endurspeglar því miður BBC nútímans mjög vel,“ sagði Davies.
Danshöfundurinn Rosie Kay gekk enn lengra og kallaði umfjöllunina „algjörlega geðveika“ og hvatti BBC til að hætta.
Alexandra Wilson, óperusagnfræðingur, sagði það orðið afar þreytandi að nánast allt í daglegu lífi væri gert að pólitísku deilumáli.
„Konur gátu áður notað naglalakk eða sleppt því, eftir eigin smekk, og ekkert meira þurfti að segja um það, allra síst BBC,“ sagði Wilson.
Hún kallaði umfjöllunina þá fáránlegustu sem hún hefði séð.
BBC sakað um pólitíska slagsíðu
Málið hefur ýtt undir áframhaldandi umræður í Bretlandi um ritstjórnarstefnu BBC og hvort hugmyndafræðileg sjónarmið séu í auknum mæli látin móta umfjöllun miðilsins um hversdagsleg málefni.
Á samfélagsmiðlum hafa notendur sakað BBC um að reyna að gera tísku og persónulegt val kvenna að pólitísku álitaefni.
Gagnrýnin kemur á sama tíma og nýjar tölur breska fjölmiðlaeftirlitsins Ofcom sýna mismunandi traust á fréttamiðlum meðal áhorfenda þeirra.
