
Mótmæli framhaldsskólanema í Frakklandi, sem hófust við Saint-Exupéry-skólann í Créteil 21. september vegna kennaraskorts, hafa á innan við tveimur vikum breiðst út um allt land. Kröfur nemenda hafa meðal annars snúið að skorti á kennurum og starfsfólki, yfirfullum bekkjum og slæmu ástandi skólahúsnæðis. Aðgerðirnar hófust með lokunum og mótmælum við skóla en hafa síðan þróast yfir í umfangsmikil átök og óeirðir víða um Frakkland.
Fjöldi lögreglumanna slasaðir og gríðarlegt tjón
Meira en 1.200 skólar hafa orðið fyrir aðgerðum og yfir 5.000 manns hafa verið handtekin frá því mótmælin mögnuðust. Eldar hafa verið lagðir að skólum, inngangar og skólabyggingar hafa brunnið og tjónið er þegar talið nema tugum milljóna evra. Á föstudag einum voru 1.747 handtekin og lögregla skráði ofbeldisatvik við 158 skóla. Hundruð lögreglumanna hafa særst auk nemenda, kennara og annarra. Þá eru hælisleitendur og múslimar áberandi á mótmælunum en í gær fréttist að því að hópar sem ekki tengust skólunum eða starfsemi þeirra hefðu blandað sér í mótmælin.
Ástandið algerlega stjórnlaust
Ástandið hefur nú orðið það alvarlegt að Patrice Faure, lögreglustjóri Parísar, lýsir því sem algerlega stjórlausu. Hann segir upphaflega forsvarsmenn mótmælahreyfingarinnar hafa misst tökin á þróuninni og hefur hvatt foreldra til að grípa inn í. Á sama tíma hafa ný mótmæli verið boðuð næstkomandi þriðjudag 6. október og óttast yfirvöld frekari átök. Hér að neðan má fylgjast með beinni myndútsendingu frá mótmælunum í Frakklandi.
