
Norðmenn kveðja Harald V konung í dag en útför hans fer fram í Ósló að viðstöddum konungsfjölskyldum, þjóðhöfðingjum og öðrum erlendum gestum. Harald lést 28. ágúst, 89 ára að aldri, og lýkur með útförinni 13 daga þjóðarsorg í Noregi.
Líkkista konungs var flutt frá konungshöllinni á fallbyssuvagni eftir Karl Johans gate að dómkirkjunni í Ósló. Konungsfjölskyldan undir forystu hins nýja konungs, Hákonar VIII, gekk með líkfylgdinni ásamt erlendum gestum.
Sonja drottning, ekkja Haralds, og Mette-Marit drottning fylgdu líkfylgdinni í bifreið. Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit úr fyrra sambandi, fékk einnig leyfi til að vera viðstaddur útförina.
Fjölmargir erlendir gestir
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Vilhjálmur Bretaprins, konungshjón Spánar og forsetar Finnlands, Þýskalands og Tékklands eru meðal þeirra sem komu til Óslóar. Þá eru krónprinsinn Akishino og Kiko krónprinsessa frá Japan, norrænu konungsfjölskyldurnar, konungshjón Belgíu og Hollands, Albert fursti af Mónakó og Abdullah II Jórdaníukonungur meðal gesta.
Þjóðin hélt mínútu þögn þegar athöfnin hófst í dómkirkjunni.
3.000 lögreglumenn og 3.500 hermenn
Gríðarleg öryggisgæsla er í Ósló vegna útfararinnar. Nær 3.000 lögreglumenn hafa verið kallaðir til starfa og um 3.500 hermenn hafa einnig verið settir í viðbragðsstöðu. Þá gilda óvenjulega umfangsmiklar takmarkanir á flugi yfir austurhluta Noregs.
Að lokinni kirkjuathöfninni fljúga 4 F-35 orrustuþotur yfir dómkirkjuna í svonefndri „missing man“-fylkingu. Líkkistan verður síðan flutt í kapellu Akershus-kastala þar sem Harald verður lagður til hinstu hvílu í konunglegu grafhýsi.
Harald tók við norsku krúnunni árið 1991 og var við dauða sinn elsti ríkjandi konungur Evrópu. Hann naut mikilla vinsælda meðal Norðmanna og hafnaði því alla tíð að segja af sér þrátt fyrir versnandi heilsu síðustu árin.
