Bókun 35 á borði forseta Íslands

Júlíus Valsson skrifar:

Samkvæmt 26. gr. stjórnarskrárinnar skal lagafrumvarp sem Alþingi hefur samþykkt lagt fyrir forseta lýðveldisins „eigi síðar en tveim vikum eftir að það var samþykkt“. Leiðin er stutt, rétt út á Álftanes, og endar á skrifborði þar sem penni liggur til reiðu. Flest frumvörp staldra þar við í fáeinar mínútur og enginn man eftir þeim daginn eftir.

Frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35, sem nú liggur fyrir Alþingi í fjórða sinn, verður tæplega í þeim hópi.

Fjórða ferðin

Frumvarpið bætir reglu við lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið. Skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir EES-skuldbindingu skal ganga framar öðru almennu lagaákvæði, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Kjósendur höfnuðu aðildarviðræðum við Evrópusambandið 29. ágúst með 52,8% atkvæða, og mánuði síðar, 30. september, stefndi Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) Íslandi fyrir EFTA-dómstólinn vegna bókunarinnar. Formenn stjórnarflokkanna segja að málið verði afgreitt í vetur.

Alvarlegar aðvaranir

Stefán Már Stefánsson, prófessor emeritus við lagadeild Háskóla Íslands, skrifaði í Morgunblaðið 15. október 2025 að álitamál væri „hvort löggjafinn geti eftir gildandi stjórnarskrá búið til ‚ofurlög‘ sem gangi fyrir öllum öðrum lögum á víðtæku sviði, jafnt eldri sem yngri“. Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, tók dýpra í árinni í júní sama ár og taldi Alþingi skorta stjórnskipulega heimild til að lögfesta frumvarpið nema stjórnarskránni yrði breytt fyrst. Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, hafði ritað þegar árið 2014 að með lögunum frá 1993 hefði verið gengið eins langt og stjórnarskráin leyfði.

Fjórða röddin kemur úr óvæntri átt. Í minnisblaði utanríkisráðuneytisins til utanríkismálanefndar árið 2020 sagði að lagabreyting af þessu tagi væri „tæplega möguleg án veigamikillar stjórnarskrárbreytingar“. Ráðuneytið hefur síðan skipt um skoðun, en stjórnarskránni hefur ekki verið breytt á meðan.

Varnarlið Bókunar 35

Verjendur frumvarpsins eru engir aukvisar. Davíð Þór Björgvinsson, prófessor og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, bendir á að reglan standi í almennum lögum sem Alþingi geti breytt hvenær sem er, og að þinginu sé frjálst að víkja frá henni í hvert sinn sem það tekur það skýrt fram. Löggjafarvaldið sé því óskert.

Þetta kunna að vera gild rök en þau vekja eina spurningu. Sé reglan svo meinlaus að Alþingi geti vikið henni til hliðar með einni setningu er vandséð hvað ESA fær fyrir fjórtán ára eftirgangsmuni, yfirgang og frekju? Bindi hún aftur á móti hendur þingsins í reynd er hún einmitt það sem lögfræðingarnir vöruðu við.

Tvær leiðir mögulegar

Staðfesti forseti lögin taka þau gildi og mál ESA fellur væntanlega niður. Deilan um stjórnarskrána flyst þá til íslenskra dómstóla og bíður þar eftir dómsmáli þar sem reglan ræður úrslitum. Það getur tekið mörg ár, og á meðan verður dæmt eftir lögum sem virtir lögfræðingar draga í efa að Alþingi hafi haft vald til að setja. Lögin verða í raun ólögleg.

Synji forseti staðfestingar fá lögin gildi engu að síður og þjóðaratkvæðagreiðsla skal fara fram innan tveggja mánaða samkvæmt 26. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Ríkisstjórnin gæti fellt lögin úr gildi áður en til hennar kæmi, líkt og gert var við fjölmiðlalögin 2004, eða látið kjósa um þau og átt á hættu annan ósigur á örfáum mánuðum. Hafni þjóðin lögunum falla þau úr gildi og málið heldur áfram í Lúxemborg, þar sem dómstóllinn getur hvorki ógilt íslensk lög né lagt á sektir. Samþykki hún þau hafa þau fengið umboð kjósenda, en stjórnarskránni verður ekki breytt með þeim hætti, því um það gildir 79. gr. hennar og hún krefst samþykkis tveggja þinga með kosningum á milli.

Blekið er fljótt að þorna

Hvorug leiðin svarar spurningunni sem lögfræðingarnir báru upp. Leiðin sem svarar henni stendur í stjórnarskránni sjálfri, ráðuneytið nefndi hana fyrir sex árum og enginn hefur lagt hana til síðan.

Blekið á Bessastöðum þornar á fáeinum sekúndum, og stjórnarskráin er hin sama á eftir og hún var á undan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila