
Bresk stjórnvöld íhuga að vísa Shabir Ahmed, sem var dæmdur fyrir alvarleg kynferðisbrot í Rochdale-málinu, til þriðja ríkis ef Pakistan neitar áfram að taka við honum. Talsmaður Keir Starmer forsætisráðherra útilokaði ekki þann möguleika þegar hann var spurður um málið á mánudag. Þetta kemur fram í frétt Daily mail.
Á að breyta 55 ára gömlum lögum?
Shabana Mahmood dómsmálaráðherra mun síðar í dag kynna fyrirhugaðar lagabreytingar sem eiga að ryðja úr vegi lagalegum hindrunum sem hafa komið í veg fyrir brottvísun Ahmed. Samkvæmt bresku útlendingalögunum frá 1971 geta erlendir ríkisborgarar verið undanþegnir brottvísun hafi þeir komið til Bretlands fyrir árið 1973 og búið þar í að minnsta kosti 5 ár.
Ahmed, sem fæddist í Pakistan, var árið 2012 dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir fjölmargar nauðganir og önnur alvarleg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum.
Pakistan neitar að taka við honum
Ahmed var sviptur breskum ríkisborgararétti og hefur jafnframt afsalað sér pakistönskum ríkisborgararétti samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla. Pakistönsk stjórnvöld hafa hins vegar lýst því yfir að þau muni ekki taka við honum og hafa gagnrýnt bresk stjórnvöld fyrir það sem þau kalla „hrokafulla framkomu og nýlenduhugsun“.
Mannréttindasáttmáli gæti flækt málið
Íhaldsflokkurinn hefur varað við því að Ahmed muni að öllum líkindum byggja á Mannréttindasáttmála Evrópu til að reyna að koma í veg fyrir brottvísun. Chris Philp, skuggainnanríkisráðherra, telur líklegt að Ahmed muni vísa meðal annars til 3. greinar sáttmálans um bann við ómannúðlegri meðferð og 8. greinar um rétt til einkalífs og fjölskyldulífs.
Ahmed reyndi áður að fá dóm sinn felldan úr gildi fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu en kröfum hans var vísað frá árið 2016.
Allir kostir sagðir til skoðunar
Bresk stjórnvöld segja að allir möguleikar séu nú til skoðunar ef Pakistan heldur áfram að neita að taka við Ahmed. Þeir möguleikar gætu meðal annars falist í því að herða skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana til pakistanskra ríkisborgara eða endurskoða þróunaraðstoð Bretlands til Pakistan, sem nemur um 50 milljónum punda á ári.
