Breski íhaldsflokkurinn vill endurheimta stöðu sína í fjármálahverfi Lundúna

Breski Íhaldsflokkurinn hyggst sækja á ný inn í fjármálahverfi Lundúna (City of London) og endurheimta þá stöðu sem flokkurinn hafði lengi meðal banka, verðbréfafyrirtækja og annarra fjármálafyrirtækja. Flokkurinn sér tækifæri eftir að ríkisstjórn Andy Burnham, hefur lagt meiri áherslu á framfærslukostnað og efnahagsuppbyggingu utan Lundúna. Þetta kemur fram í umfjöllun Politco.

Íhaldsflokkurinn var lengi nátengdur fjármálageiranum og stefnu um lága skatta og minna regluverk. Orðspor flokksins fyrir efnahagslegan stöðugleika beið hins vegar hnekki á valdatíma hans, ekki síst í þeirri ólgu sem fylgdi ríkisstjórn Liz Truss.

Vill ganga lengra í afnámi reglna

Kemi Badenoch leiðtogi Íhaldsflokksins hefur lagt fram tillögur sem ganga lengra en stefna Verkamannaflokksins í afnámi reglna á fjármálamarkaði.

Meðal þeirra er að lækka eiginfjárkröfur banka, afnema reglur sem aðskilja almenna bankastarfsemi frá fjárfestingarstarfsemi og leggja niður embætti umboðsmanns fjármálaþjónustu.

Mel Stride skuggafjármálaráðherra segir þetta aðeins upphafið að áformum flokksins fyrir fjármálageirann. Unnið sé að umfangsmeiri stefnu í samráði við fyrirtæki sem starfa á markaðnum.

Flokksforystan hefur jafnframt fengið Marcus Boyle, fyrrverandi samstarfsaðila hjá Deloitte og fyrrverandi formann bresku fjárhættuspilanefndarinnar, til ráðgjafar um breytingar á stefnu flokksins.

Sækir stuðning beint til fjármálafyrirtækja

Íhaldsflokkurinn hefur aukið samskipti sín við banka og önnur fyrirtæki í City of London. Fulltrúar fjármálageirans segja flokkinn hafa lagt áherslu á að funda með fyrirtækjum og hlusta á sjónarmið þeirra.

Búist er við að fleiri fyrirtæki úr fjármálageiranum sæki landsfund Íhaldsflokksins í haust en áður.

Árangur í City snýst ekki eingöngu um atkvæði þeirra sem starfa þar. Stuðningur fjármálageirans gæti einnig hjálpað Íhaldsflokknum að endurheimta trúverðugleika sinn í efnahagsmálum en flokkurinn er enn á eftir bæði Reform UK og Verkamannaflokknum í skoðanakönnunum.

Barist um arfleifð Thatcher

Samkeppnin snýr einnig að Reform UK sem hefur reynt að sækja inn á hefðbundið pólitískt yfirráðasvæði Íhaldsflokksins.

Reform UK hefur boðað eigin tillögur um breytingar á fjármálamarkaði í tengslum við að 40 ár eru liðin frá svokölluðum „Big Bang“-umbótum Margaret Thatcher sem breyttu fjármálamarkaðnum í Lundúnum.

Robert Jenrick, sem gekk úr Íhaldsflokknum til liðs við Reform UK, hefur boðað að flokkurinn vilji ganga mun lengra í breytingum á regluverki fjármálageirans.

Íhaldsflokkurinn ætlar hins vegar ekki að gefa eftir þá pólitísku arfleifð. Flokkurinn vísar til umbóta ríkisstjórnar Thatcher á níunda áratugnum og hyggst byggja nýja efnahagsstefnu sína að hluta á sambærilegri áherslu á afnám reglna og aukið svigrúm fjármálafyrirtækja.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila