Breskur þingmaður sakar franskt varðskip um að hafa skotið aðvörunarskotum að sér

Chris Philp, þingmaður Íhaldsflokksins á breska þinginu, sakar franskt varðskip um að hafa skotið 17 skotum meðan hann var um borð í breskum fiskibáti á Ermarsundi. Frönsk yfirvöld hafna því að um hafi verið aðvörunarskot og segja að skotið hafi verið sem hluta af reglubundinni herþjálfun. Þetta kemur fram í frétt France24.

Atvikið átti sér stað þegar Philp var í sjónvarpsviðtali um borð í fiskibáti þar sem fylgst var með bátum sem flytja ólöglega innflytjendur frá Frakklandi yfir Ermarsund til Bretlands.

Segir skotunum hafa verið beint að bátnum

Philp greindi frá því á samfélagsmiðlum að franskt herskip hefði siglt nærri bátnum og skotið 17 skotum í sjóinn fyrir aftan hann. Í myndskeiði frá BBC má heyra röð skota á meðan Philp er í viðtali og franska varðskipið sést í baksýn. Ljósmyndari hjá The Times náði einnig mynd af einkennisklæddum sjóliða hleypa af skotvopni í átt að sjónum.

Philp sagði að atvikið virtist vera tilraun til að senda viðvörun eða hræða áhöfnina.

Frakkar segja um æfingu að ræða

Landhelgisstjórn Frakklands við Ermarsund sagði hins vegar að áhöfn varðskipsins Flamant hefði verið að framkvæma reglubundna skotæfingu með handvopnum undan Cap Gris-Nez í Pas-de-Calais. Samkvæmt frönskum yfirvöldum voru allar lögboðnar viðvaranir gefnar, öryggissvæði virt og æfingin hefði ekkert tengst nærveru breska fiskibátsins sem hafi verið utan skotsvæðisins.

Þau segja jafnframt að varðskipið hafi ekki verið við eftirlit með innflytjendabátum þegar æfingin fór fram.

Hafnar skýringum Frakka

Philp segir skýringar franskra yfirvalda ekki trúverðugar og heldur því fram að engar viðvaranir hafi verið gefnar um skotæfingu á svæðinu.

Atvikið kemur í kjölfar fleiri spennutilvika á Ermarsundi. Í síðustu viku framkvæmdi rússneskt herskip skotæfingu á alþjóðlegu hafsvæði undan suðurströnd Englands eftir að hafa tilkynnt breskum herskipum um fyrirhugaða æfingu. Í júní skaut rússneskt herskip einnig aðvörunarskotum að seglskútu á Ermarsundi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila