
Vaxandi áhyggjur eru nú af því að matvælaverð geti hækkað verulega á næstu mánuðum vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum, hækkandi olíuverðs og versnandi aðstæðna í landbúnaði víða um heim. Í umfjöllun Zerohedge um málið kemur fram að meðalverð á bensíni í Bandaríkjunum sé komið í 4,56 dali á gallon og að díselolía hafi hækkað enn meira í verði. Bent er á að sú þróun muni óhjákvæmilega skila sér í hærra matvælaverði þar sem flutningar landbúnaðarvara og matvæla byggja að stórum hluta á díselolíu.
Matarverð þegar tekið að hækka hratt
Fram kemur að fjölmargar algengar matvörur hafi þegar hækkað verulega í verði á síðustu tólf mánuðum. Tómatar séu nú um 40% dýrari en á sama tíma í fyrra, kaffi hafi hækkað um 19% og kjötvörur um 9% að meðaltali.
Þá hefur nautakjöt hækkað enn meira, þar sem hakk er sagt um 15% dýrara, nautasteikur 16% dýrari og stærri nautakjötsstykki allt að 18% dýrari en fyrir ári.
Íranar vilja taka upp gjaldtöku í Homuzsundi
Í umfjölluninni er bent á áhrif átaka við Íran á alþjóðlega olíuflutninga. Stríðið hafi raskað umferð um Hormuz-sund sem er ein mikilvægasta siglingaleið heims fyrir olíu og eldsneyti. Díselolía knýr meðal annars fiskiskip, dráttarvélar og vöruflutningabíla sem flytja meirihluta landbúnaðarafurða í Bandaríkjunum. Hærri eldsneytiskostnaður hefur því þegar byrjað að skila sér út í verðlag.
Þá er því haldið fram að Íran vilji festa í sessi varanlegt gjaldtökukerfi fyrir skip sem fari um sundið og að sum skip þurfi að greiða yfir eina milljón dala í gjöld fyrir siglingar um svæðið.
Óttast nýja alþjóðlega verðbólgukreppu
Bandarísk stjórnvöld hafa varað við því að slík þróun geti gert friðarsamkomulag við Íran nánast ómögulegt og aukið hættuna á langvarandi alþjóðlegri verðbólgukreppu. Samhliða þessu eru einnig áhyggjur af versnandi veðurskilyrðum og yfirvofandi „Super El Niño“ veðurfyrirbæri sem vísindamenn segja geta orðið eitt það öflugasta sem mælst hefur.
Vísindamenn hafa bent á að sambærilegt El Niño-ástand á árunum 1877 til 1878 hafi átt þátt í hungursneyð sem kostaði tugi milljóna mannslífa um allan heim.
Óttast alvarlega matvælakreppu
Sérfræðingar vara nú við því að samspil hækkandi eldsneytisverðs, áburðarkreppu, þurrka og öfgaveðurs geti leitt til verulegs samdráttar í matvælaframleiðslu á heimsvísu. Bent er á að ef matvælaverð heldur áfram að hækka með sama hraða og undanfarna mánuði geti það haft mjög alvarleg áhrif á heimili, neytendur og efnahag ríkja víða um heim.
