
Rumen Radev, forsætisráðherra Búlgaríu, segir að landið eigi ekki heima í svonefndu Coalition of the Willing, bandalagi ríkja sem hefur það markmið að samræma áframhaldandi stuðning við Úkraínu og undirbúa öryggistryggingar komi til vopnahlés. Radev lét þessi orð falla í París þar sem Emmanuel Macron Frakklandsforseti hafði boðið leiðtogum bandalagsins til fundar samhliða þjóðhátíðardegi Frakka, Bastilludeginum. Þetta segir í frétt Politico.
Segir lausnina felast í diplómatíu
Radev sagði Macron hafa boðið Búlgaríu að halda áfram þátttöku í samstarfinu en að það væri ekki réttur vettvangur fyrir landið.
„Við erum ekki hluti af bandalagi sem leggur áherslu á áframhaldandi fjárhagslegan og hernaðarlegan stuðning við Úkraínu,“ sagði hann.
Að sögn Radevs verður ekki fundin varanleg lausn á stríðinu með áframhaldandi hernaðaraðgerðum.
„Ég tel að lausnin á þessum átökum felist ekki í því að lengja þau með hernaðarlegum aðgerðum heldur í öflugri diplómatískri viðleitni,“ sagði hann.
Vopnagjafir stöðvaðar
Frá því Radev tók við embætti hefur ríkisstjórn hans markað aðra stefnu gagnvart Úkraínu en fyrri stjórnvöld.
Í júní tilkynnti varnarmálaráðherra landsins að Búlgaría myndi hætta að gefa Úkraínu vopn. Síðar var þó skýrt tekið fram að áfram yrði heimilt að selja Úkraínu vopn á viðskiptalegum grundvelli.
Radev hefur ítrekað lýst þeirri skoðun að ekki sé hægt að vinna stríðið á vígvellinum og hefur áður sagt málstað Úkraínu vera vonlausan.
Segir Búlgaríu áfram standa með NATO og ESB
Þrátt fyrir afstöðuna til bandalagsins lagði Radev áherslu á að Búlgaría væri áfram virkur þátttakandi í samstarfi innan NATO og Evrópusambandsins.
Hann varði jafnframt þá ákvörðun stjórnvalda að hóta neitunarvaldi vegna nýjasta refsiaðgerðapakka ESB gegn Rússlandi eftir að Búlgaría mótmælti meðal annars því að Kirill patríarki rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar yrði settur á refsiaðgerðalista.
Yfir 30 ríki í bandalaginu
Coalition of the Willing er undir forystu Frakklands og Bretlands og samanstendur af yfir 30 ríkjum sem vinna að áframhaldandi stuðningi við Úkraínu og undirbúningi öryggistrygginga ef samið verður um vopnahlé.
