COVID: ORÐ & EFNDIR

Hallur Hallsson skrifar:

Íhugið vandlega ummæli sexmenninganna á meðfylgjandi mynd, sögðu þau sannleikann? Íhugið
ummæli þríeykisins: Þórólfs, Ölmu & Víðis. Hvað sögðu þau, hverju lofuðu þau, margsaga? Íhugið,
mesti umframdauði í Evrópu er á Íslandi, 55,8% Eurostat. Íhugið faraldurinn á ungu fólki: Died
Suddenly. Horfið á heimildamynd Stew Peters. Til hvers grímur og einangrun – lockdown?
Lyfjastofnun uppnefndi Ivermectin hrossamixtúru, Landlæknir uppnefndi Hydroxoqloraquine klór. Af
hverju? Snákalyfinu Remdesivir ávísað á sjúkrahúsum okkar? Kynnið ykkur. Enn er verið að kalla fólk í
sprautur.

Íhugið framvarðasveitir ríkislögreglustjóra skapa stemmningu í Höllinni; RÚV með 6.7 milljarða
ríkisfé; Stöð 2, Vísir, Bylgjan, Mogginn & Fréttablaðið & rest 380 milljóna króna ríkisstyrki. Allt þetta
lið með ríkisáróður í liði lyfjarisa. Læknar sölumenn lyfjarisa þegja þunnu hljóði. Eðlilegt? Ræningarnir
í Kardemommubænum hugguðu grátandi, skelfingu lostin börn í Höllinni. Íhugið. Katrín, Svandís,
Þórdís, Lilja & Áslaug skella skollaeyrum við þjáningum þúsunda kynsystra sinna með alvarlegar
aukaverkanir; tíðatruflarnir, krabbameinum, ónæmisvanda, hjartaveikindum, skyndidauði – karlar,
konur og börn. Rebekka Ósk Sváfnisdóttir krefst skaðabóta vegna þrálátra tíðablæðinga. Hún
stofnaði Facebook-hópinn Tíðahringur bólusettra kvenna“. Þúsundir kvenna.

Íhugið leynisamning ríkistjórnar Íslands við lyfjarisann Pfizer á tilraunavaksíni. Hvað er
tilraunavaksín? Íhugið ummæli Pfizer fyrir covidnefnd Evrópuþingsins: „…Aldrei var rannsakað hvort
covid-vaksín kæmi í veg fyrir smit.“ Í Evrópu er hafin rannsókn á Ursulu von der Leyen, æðsta
strumpi ESB fyrir kaup á 4,5 milljörðum skammta af covid vaksínum fyrir 450 milljónir ESB íbúa sem
kallað er stærsta spillingarmál í sögu mannkyns. Bourla forstjóri Pfizer neitar að mæta. „Ég hef engar
frekari upplýsingar til að deila með nefndinni.“ Hroki eða ótti?

Milljónir á milljónir ofan í Evrópu & Ameríku misstu vinnu, útskúfaðir af veitingastöðum, reknir úr
skólum, bannað að ferðast; fólk læst inni, grímu þvingað á börn og fullorðna. Erlendis fer fram
umræða hvort fólkið hér að ofan eigi að fá sakaruppgöf; amnesty. Boris Johnson ásamt 15 öðrum
stefnt fyrir International Criminal Court í Haag; fólk notað við lyfjatilraunir. Brot á Nurnberg
siðareglunum. Flórída dregur lyfjarisa til ábyrgðar fyrir að ljúga að fólki; 86% aukning á hjartavanda
fólks á besta aldri 18 til 39 ára.

Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada bar rangan vitnisburð fyrir sannleiksnefnd um
hatursummæli sín: “Mótmælendur eru jaðarhópur; reiðir karlar sem trúa ekki vísindum,
kvenhatarar og razistar.“ Eiðsvarinn neitaði Trudeau að hafa sagt þetta. Hann laug, lét loka
bankareikningum yfir 200 manns & leggja hald á 8 milljónir dollara óbreyttra borgara og fangelsa fólk
fyrir friðsöm mótmæli.

Íhugið heljartök lyfjarisa og þjóna þeirra á samfélögum Vesturlanda.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila