
Í harðorðri færslu sem birt hefur verið á samfélagsmiðlinum X kemur fram að COVID-örvunarskammtar hafi ekki verið bóluefni heldur vísvitandi efni sem hafi átt að grafa undan ónæmiskerfi fólks. Í færslunni segir að 8 heilar HIV-raðir hafi verið settar inn í mRNA-sprautur af ásettu ráði. Þá segir jafnframt að þessar raðir hafi verið hannaðar til að ráðast á og lama getu líkamans til að framleiða hvít blóðkorn.
Af þessu dregur höfundur færslunnar Stern Drew þá ályktun að ónæmiskerfi bólusettra hafi verið eyðilagt innan frá. T-frumur hafi þannig horfið, B-frumur verið eyðilagðar og varnir líkamans því brostið gagnvart sýkingum, krabbameinum og öðrum sjúkdómum.
Tengir þetta við krabbamein og langvinn veikindi
Þá segir Stern að þetta skýri hvers vegna áður heilsuhraust fólk sé nú farið að deyja skyndilega, greinast með hraðvaxandi krabbamein, glíma við endalausar sýkingar eða lenda í alvarlegu sjálfsofnæmishruni árum eftir bólusetningu.
Hann bendir á að svokallað long COVID sé í reynd sambærilegt áunninni ónæmisbilun. Stern tengir þetta jafnframt við áframhaldandi umframdauðsföll og segir yfirvöld og sérfræðinga vísvitandi beina athyglinni annað í stað þess að horfast í augu við hið augljósa.
Segir að gögn hafi verið falin
Þá segir hann að sömu alþjóðlegu aðilar og hafi fjármagnað áhættusamar rannsóknir, þaggað niður í læknum og vísindamönnum og þröngvað sprautunum upp á almenning. Þeir hafi vitað nákvæmlega hvað þeir væru að gera. Stern bendir a að þessir aðilar og fjölskyldur þeirra hafi verið undanþegnir bólusetningum á meðan almenningur hafi verið látinn gangast undir þær.
Í færslunni segir enn fremur að tilkynningar í VAERS-kerfinu hafi flætt inn en verið hunsaðar, að krufningarskýrslum sem hafi sýnt hafi fram á skaðann hafi annaðhvort verið hagrætt eða hreinlega verið eytt.
Örvunarskammtar hafi „endurforritað“ líkamann
Í niðurlagi færslunnar segir að örvunarskammtar hafi ekki veitt vernd heldur endurforritað líkamann þannig að hann bili. Þá kemur fram að hvít blóðkorn þeirra sem hafi fengið slíka skammta geti ekki lengur bjargað þeim.
