Danmörk,Þýskaland, Holland, Austurríki og Grikkland ætla að senda hælisleitendur til Rúanda

Danmörk, Þýskaland, Holland, Austurríki og Grikkland hafa náð samkomulagi við Rúanda um að vinna að stofnun brottvísunarmiðstöðvar í landinu fyrir fólk sem hefur fengið synjun um hæli í Evrópu. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, fagnar ákvörðuninni og segir hana marka tímamót í evrópskum útlendingamálum. Stefnt er að því að fyrstu brottflutningarnir geti farið fram á næsta ári. Morten Bødskov, ráðherra útlendingamála í Danmörku segir að danska ríkisstjórnin byrji á að flytja um 100 hælisleitendur sem hafa fengið synjun til Rúanda. Fjallað er um málið á vef DR.

Mette Frederiksen boðar grundvallarbreytingar á hæliskerfinu

Frederiksen segir um sögulegan áfanga í baráttu Evrópuríkja fyrir aukinni stjórn á innflytjendamálum að ræða. Hún segir að nú hefjist raunveruleg endurskoðun á hæliskerfi Evrópu, sem hún lýsir sem ómannúðlegu og ósjálfbæru.

„Nú ætlum við fyrir alvöru að ná aftur stjórn á landamærum Evrópu,“ segir Frederiksen í yfirlýsingu um málið.

Hún telur að nýja fyrirkomulagið muni marka stefnu Evrópuríkja í útlendingamálum um ókomin ár og færa hana nær vilja almennings.

Frederiksen bendir á að fólk á flótta eigi að fá aðstoð en að núverandi kerfi leiði til þess að fjöldi fólks leggi líf sitt í hættu við að komast til Evrópu. Á sama tíma verði þeir sem minnst mega sín eftir, þar sem þeir hafi hvorki fjármuni né möguleika til að leggja upp í slíka ferð.

Hún segir jafnframt grundvallaratriði að lýðræðislega kjörin stjórnvöld í Evrópu ákveði sjálf hverjir fái að koma til álfunnar og hversu mörgum verði tekið á móti.

Ákvarðanirnar eigi ekki að vera í höndum smyglara sem hagnist á neyð fólks.

Byrja á að flytja um 100 manns frá Danmörku

Morten Bødskov segir að fyrsta skrefið verði að flytja hælisleitendur sem þegar hafa fengið endanlega synjun og hafa ekki lengur heimild til dvalar í Danmörku.

Hann segir að um 100 einstaklingar séu í þeim hópi sem stjórnvöld horfi til í upphafi.

Ekki stendur til að byrja á því að flytja erlenda afbrotamenn sem vísa á úr landi, þar sem núverandi lagalegar forsendur heimila ekki slíka framkvæmd með sama hætti.

Bødskov lýsir samkomulaginu sem mikilvægum áfanga eftir margra ára viðleitni Dana til að breyta evrópsku hæliskerfi.

Markmiðið sé að koma í veg fyrir að fólk sem hefur ekki heimild til dvalar geti engu að síður verið áfram í Evrópu vegna erfiðleika við brottvísun.

Fólk fær möguleika á að setjast að í Rúanda

Samkvæmt fyrirhuguðu fyrirkomulagi verður fólki sem hefur fengið synjun um hæli og ekki lengur rétt til dvalar í Evrópusambandinu heimilt að flytja til móttökumiðstöðvar í Rúanda.

Þar á það að fá aðstoð við að hefja nýtt líf í landinu og aðlagast samfélaginu.

Þeir sem kjósa fremur að snúa aftur til heimalands síns eiga að geta fengið stuðning við heimför og aðlögun eftir heimkomu.

Ríkin fimm hyggjast vinna að nánari útfærslu fyrirkomulagsins í samstarfi við stjórnvöld í Rúanda, Alþjóðafólksflutningastofnunina og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun einnig fylgjast með undirbúningnum til að tryggja að fyrirkomulagið samræmist löggjöf sambandsins.

Fyrstu brottflutningar fyrir árslok 2027

Ríkin fimm hafa náð samkomulagi um að vinna að stofnun miðstöðvarinnar, en endanlegur samningur um framkvæmd hennar hefur ekki enn verið undirritaður.

Danska ríkisstjórnin gerir ráð fyrir að hægt verði að kynna nánari samning við Rúanda í byrjun næsta árs.

Stefnt er að því að fyrstu brottflutningarnir geti farið fram fyrir árslok 2027.

Danmörk hyggst jafnframt undirrita sérstakan samstarfssamning við Rúanda 23. nóvember. Sá samningur mun meðal annars ná til fólksflutninga, viðskipta og umhverfismála.

Ágreiningur um mannréttindi og framkvæmdina

Áformin hafa vakið andstöðu meðal mannréttindasamtaka og stjórnmálaflokka í Danmörku.

Samkvæmt umfjöllun DR hafa að minnsta kosti tveir flokkar sem styðja ríkisstjórnina lýst efasemdum um fyrirkomulagið.

Anna Bjerre, talskona Alternativet, segir flokkinn áfram eindregið andvígan hugmyndinni og efast um að hægt verði að tryggja mannréttindi þeirra sem fluttir verða til Rúanda.

Peder Hvelplund, talsmaður Enhedslisten í útlendingamálum, hefur einnig varað við því að senda fólk til þriðja ríkis þar sem erfitt geti reynst að tryggja réttindi þess.

Þá hafa 47 hjálpar-, verkalýðs- og mannréttindasamtök gagnrýnt áformin og varað við því að fólk geti lent í langvarandi óvissu um framtíð sína.

Ríkisstjórnirnar fimm leggja hins vegar áherslu á að fyrirkomulagið verði útfært í samræmi við alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar og lög Evrópusambandsins.

Danmörk hefur lengi barist fyrir breytingunum

Frederiksen lagði þegar árið 2018 fram hugmyndir um að hælisumsóknir fólks sem leitaði til Evrópu yrðu afgreiddar í móttökumiðstöðvum utan álfunnar.

Sú hugmynd hefur síðan tekið breytingum. Samkvæmt núverandi áformum verður áfram tekin afstaða til hælisumsókna innan Evrópu, en þeir sem fá endanlega synjun geta verið fluttir til Rúanda.

Frederiksen telur að með þessu verði hægt að draga úr ólöglegum fólksflutningum og rjúfa viðskiptalíkan smyglara sem hagnast á því að flytja fólk yfir landamæri.

Hún segir samstarfið við Rúanda geta orðið upphafið að nýrri stefnu í útlendingamálum Evrópu sem muni hafa áhrif um ókomin ár.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila