
Dómari í New York hefur lagt tímabundið lögbann við framkvæmd nýs skatts Zohran Mamdani, borgarstjóra í New York á dýrar fasteignir sem ekki eru aðalheimili eigenda. Borgaryfirvöldum var jafnframt gert að fjarlægja af netinu lista með nærri 1 milljón fasteigna. Þetta segir í frétt Zerohedge.
Skatturinn, svonefndur pied-à-terre skattur, leggst á dýr, önnur heimili í New York. Hann nær meðal annars til einbýlishúsa að verðmæti 5 milljónir dala eða meira og íbúða í fjölbýli að verðmæti 1 milljón dala eða meira þegar eignin er ekki aðalheimili eigandans.
Borginni gert að fjarlægja listann
Wayne Ozzi, dómari lagði lögbannið á að kröfu 3 fasteignaeigenda sem höfðuðu mál gegn borginni vegna framkvæmdar skattsins.
Fjármálayfirvöld borgarinnar höfðu birt opinberan lista með um 960.000 fasteignum sem mögulega gætu fallið undir skattinn. Borgin hafði jafnframt sent um 17.000 fasteignaeigendum tilkynningar um að þeir kynnu að þurfa að greiða skattinn.
Dómarinn bannaði borgaryfirvöldum að grípa til frekari aðgerða á grundvelli listans eða tilkynninganna og fyrirskipaði að listinn yrði fjarlægður af netinu. Næsta þinghald í málinu er fyrirhugað 31. ágúst.
Eigendur segja borgina hafa farið rangt að
Randy Mastro, fyrrverandi aðstoðarborgarstjóri New York og lögmaður fasteignaeigendanna, sagði borgaryfirvöld hafa farið rangt að við framkvæmd skattsins og hefja þyrfti ferlið upp á nýtt.
Málshefjendur halda því fram að borgaryfirvöld hafi ranglega lagt ábyrgðina á fasteignaeigendur að sanna að þeir ættu ekki að greiða skattinn í stað þess að borgin ákvarðaði fyrst hvaða eignir féllu raunverulega undir hann.
Mastro fagnaði niðurstöðunni og sagði úrskurðinn verja réttindi hundruð þúsunda fasteignaeigenda sem hefðu verið dregnir inn í ferlið að ósekju.
Mamdani ætlar að verja skattinn
Mamdani hefur varið skattinn og segir honum ætlað að tryggja að eigendur dýrra annarra heimila leggi meira til reksturs borgarinnar.
Borgarstjórinn gerði jafnframt lítið úr málshöfðun Mastro og sagði fátt öruggara í New York en dauðann, skatta og að Randy Mastro höfðaði mál gegn stjórn hans.
Stjórn Mamdani hefur lýst yfir óánægju með úrskurðinn og áfrýjað honum. Áfrýjunin hefur í bili frestað réttaráhrifum lögbannsins.
