Dr. Fauci um grimmilega innilokun fólks í Kína: „Allt í lagi ef tilgangurinn er að bólusetja alla“

Dr. Anthony Fauci styður grimmdarlokanir kínverskra kommúnista á landsmönnum sínum „ef tilgangurinn er að bólusetja fólkið“ (mynd Hvíta húsið/Shealah Craighead).

Mikil mótmæli í kínverskum borgum

Dr. Fauci sagði á mánudag, að ef Kína væri að bólusetja fólkið, þá væri í lagi að loka það tímabundið inni. Kínverjar mótmæla um allt land. Mótmælin hófust þegar eldur kom upp í byggingu, þar sem íbúarnir voru innilokaðir vegna grimmilegrar COVID-stefnu kommúnistaflokksins. Á myndbandinu hér að neðan má heyra angistaróp fólks frá gluggum íbúða sem komast ekki út og ein íbúðin sést brenna.

Mótmæla harðstjórn kommúnista

Yfirvöld eiga aldrei að geta breytt heimilum fólks í lokaða fangaklefa

Fauci sagði að lokun væri í lagi svo lengi sem það væri „tilgangur“ með innilokun fólksins. Dr. Fauci er hættulegur. Hann sagði:

„Ef tilgangurinn er að bólusetja allt fólkið, sérstaklega aldraða, þá er allt í lagi.“

Lokanir eru ALDREI í lagi. Það er einmitt ástæðan fyrir því , að ókjörnir embættismenn eins og Fauci eiga ALDREI að fá vald til að loka landið eða beita bólusetningarþvingunum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila