Dr. Sucharit: „Bóluefnið er lífshættulegt – hvað eruð þið eiginlega að hugsa?“

Prófessor emeritus Sucharit Bhakdi, taílenskur örverufræðingur fæddur í Bandaríkjunum, er afskaplega vonsvikinn yfir því að Norðurlöndin hafi látið blekkja sig með kórónaveirunni og svo kölluðum bóluefnum. „Bóluefnin“ eru stórhættuleg, banvæn – og tilgangslaus.“ Sucharit Bhakdi ætlaði að eyða síðustu árum sínum í Skandinavíu en er hættur við það og er afar vonsvikinn á þeirri vísindalegu sniðgöngu, sem Norðurlandabúar hafa sýnt. Hann er berorður og miskunnarlaus í gagnrýni sinni á á sænska lækna og svokallaða sérfræðinga.

Fréttamaður Swebbtv, Jesper Johansson, tók viðtal við prófessor Sucharit Bhakdi, heimsþekktan gagnrýnanda Covid-bólusetninga og opinberrar stjórnun gegn smitsjúkdómnum. Gagnrýni Bhakdi er bæði fölskvalaus og kröftug og endurspeglar þá reiði sem fólk í heiminum hefur gegn Covid ráðstöfunum yfirvalda. Viðtalið má sjá á myndbandi á ensku neðst á síðunni. Útvarp Saga birtir hér úrdrátt úr samtalinu.

„Rísið upp og lesið um þessi svo kölluðu bóluefni. Í guðanna bænum, takið til baka Norðurlandaímynd ykkar og segið nei! Burtséð frá því hver segir já, þá getið þið sagt nei af því að þið eruð fullvalda!“

Sucharit Bhakdi tók eftir því snemma í „faraldrinum“ að eitthvað var ekki rétt. „Það voru fyrstu viðbrögðin mín. Að eitthvað væri mjög rangt, skrítið og falskt“ segir hann og bendir á að hann hafi rannsakað smitsjúkdóma og örverufræði í yfir 40 ár. „Ég hafði áhyggjur af því að verið væri að gera mjög óréttmæta hluti.“

Hann spurði, hvort stjórnmálamenn vissu í raun örugglega, að þetta væri alveg ný veirutegund og að fólk væri ekki þegar með innbyggða vörn. Að sögn Bhakdi, þá er Covid-19 augljóslega ekki drápsveira. Hann áttaði sig snemma á því, að hið svokallaða bóluefni myndi ekki virka.

Sucharit Bhakdi vísar til nýrrar rannsóknar sem birt var í Nature Medicine, þar sem 36 einstaklingar á aldrinum 18-30 ára útsettu sig sjálfviljugir fyrir upprunalegt afbrigði veirunnar. Ekki var leyfilegt að bólusetja þá, sem tóku þátt í tilrauninni og þeir máttu ekki hafa fengið covid áður.

– Þessi rannsókn batt endi á allan heimsfaraldurinn.“.

Líkaminn þekkir hluta veirunnar og slær til baka

18 þeirra sem tóku þátt voru smitaðir. Hinir 18 ekki. Enginn fékk alvarleg einkenni. Sucharit Bhakdi segir:

„Veiran á erfitt með að ráðast á þig og fjölga sér því náttúrulega mótspyrnan er svo sterk, að helmingur fólks sem kemst í snertingu við veiruna myndi ekki einu sinni vita, að það hefði komist í snertingu við hana. Og veiran myndi ekki vita af því heldur, vegna þess að hún náði ekki að fjölga sér.“

PCR prófin sýndu mjög greinilega smit þeirra sem meðvitað létu smita sig.

2 af 18 smituðum einstaklingum sýndu engin einkenni. Að einkennalaust fólk smiti aðra er goðsögn og byggir á sviksamlegri þýskri rannsókn, segir Bhakdi.

Að auki tókst hinum þessum 18 smituðu einstaklingum að framleiða verndandi mótefni innan tveggja vikna. Líkaminn þekkir hluta veirunnar og slær til baka. Kórónaveiran drepur ekki fólk undir 70 ára aldri frekar en flensan, heldur hann áfram.

Ef þið fylgið WHO munuð þið ganga í fótspor glæpamanna

„Þetta er ekki drápsveira. Það þarf ekkert að deila um það. Allt er opinberlega birt. Ég þarf ekki að vera samsæriskenningasmiður til að segja þetta. Þetta eru ekki mínar tölur, þetta eru tölur ykkar. Þið Svíar hafið þessar tölur. Danir hafa þær. Svo þið ættuð að skoða tölurnar og tileinka ykkur þær í stað þess að tala svona mikla vitleysu.“

Hann er ekki algjörlega á móti bóluefnum. Hann tekur hundaæði sem dæmi, sem er 100 % banvænt. Fólk sem er í hættu á að verða fyrir hundaæði á að láta bólusetja sig, bendir hann á.

Samtímis gagnrýnir hann Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, WHO afar hart.

– WHO er samtök illmenna, án þekkingar á læknisfræði eða ónæmisfræði. Ef þið stoltir Norðurlandabúar, sem áður voruð leiðandi í læknisfræðilegum rannsóknum, fylgið þeim þá munuð þið ganga í sporum glæpamanna. Glæpamenn sem hafa drepið svo marga og hælt sér af því. Og þið treystuð þeim, sem er enn þá meira áhyggjuefni.“

Bólusetningin hefur aldrei virkað, getur ekki virkað, mun ekki virka og er algjörlega óþörf.

Að sögn Bhakdi myndar bóluefnið ekki mótefni sem vernda öndunarfærin. Og það kemur líka fram í rannsóknum:

„Ef þú ert bólusettur, þá ertu alls ekki varin gegn sýkingu. Þvert á móti. Sýkingin mun versna og veirumagnið verður hærra. Bólusetningin hefur aldrei virkað, getur ekki virkað, mun ekki virka og er algjörlega óþörf. Bóluefnið er banvænt og hefur drepið svo marga fátæka Norðurlandabúa. Gamla, unga og börn. Og þið leyfið þessu að gerast vegna eigin fáfræði ykkar sem er skammarlegt. Ef þið áttið ykkur ekki fljótlega á þessu, þá munuð þið glatast eins og aðrir og það er ykkur sjálfum að kenna. Þið sem eruð í þessu frábæra landi hafið öll tækifæri til að breyta þessu. Einu sinni hélt ég að ég myndi eyða síðustu áratugum mínum í Skandinavíu. En það var hugsun gærdagsins. Ég hef orðið fyrir svo miklum vonbrigðum með ykkur.“

Mannkyninu fækkar með bóluefnunum og öðrum svo kölluðum covid-aðgerðum

Sucharit Bhakdi er sérstaklega gagnrýninn á þýska vísindamenn. Þjóðverjar eru verstir í heimi, fullyrðir hann – hrokafullir og fáfróðir – á meðan Svíar og aðrir Norðurlandabúar hafa alltaf verið þeir bestu. Að minnsta kosti áður fyrr.

„Hvað er þetta? Hvar er lógíkin? Hvar er Skandinavía? Hvar er Svíþjóð? Hvar hafið þið heilann? Þetta er ótrúlegt. Sænskir ​​læknar og vísindamenn eru jafn slæmir og þeir þýsku og það er synd. Allt finnst á prenti. Þessi bóluefni eru banvæn.“

Prófessorinn vill láta svipta þá lækna starfsleyfum sem gera lítið úr fylgikvillum bóluefnanna eins hjartavöðvabólgu. Samkvæmt Sucharit Bhakdi fækkar mannkyninu vegna bóluefnanna og annarra svo kallaðra covid-ráðstafana.

Einn dag munu börnin spyrja: „Hvernig gátuð þið gert okkur þetta?“

„Ef þið gefið ykkur á börnin okkar verður okkur að mæta. Við munum elta ykkur til enda veraldar. Það er einmitt það sem Svíar þurfa að gera. Rísið upp og dragið þetta fólk fyrir dómstólana! Þeir halda áfram að ljúga að ykkur. Ég skil ekki hvernig Svíar geta sætt sig við, að ástvinir þeirra hafa verið skaðaðir og drepnir. Ég get ekki skilið það. Verstu glæpamennirnir eru þeir sem eru við völd og vita að bóluefnið drepur fólk en gera ekkert í málunum.“

„Rísið upp og lesið um þessi svo kölluðu bóluefni. Í guðanna bænum, takið Norðurlandaímyndina til baka og segið nei! Sama hver segir já, þið getið sagt nei, því þið eruð frábær! Annars munið þið missa ástvini ykkar, fjölskyldur, vini og börn. Og einn daginn munu börnin ykkar spyrja ykkur: „Hvernig gátuð þið gert okkur þetta?“ Rísið upp!“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila