Eiga Grindvíkingar að hlusta á jarðfræðingana?

Júlíus Valsson skrifar:

Íslenskir jarðvísindamenn geta sagt allnákvæmlega til um hvort kvika safnast fyrir og hvar hún gæti brotist upp, en tímasetning goss er mun erfiðari. Raunverulegur fyrirvari er oftast talinn í mínútum eða klukkustundum, og um það snýst deilan um öryggi í Grindavík.

Tæki vöktunar og tímakvarðar spáa

Spágetan hvílir á þéttri og samfelldri vöktun jarðskorpunnar. Jarðskjálftamælanetið er ein meginstoðin og í febrúar 2026 tók Veðurstofan SeisComP-kerfið í notkun sem aðalkerfi í stað SIL-kerfisins.

Aflögun lands er mæld með GPS-stöðvum og gervitunglum (InSAR). Út frá þeim gögnum er rúmmál kviku undir Svartsengi metið með skilgreindu óvissubili. Við bætast gasmælingar, þenslumælar og vefmyndavélar. Algengir fyrirboðar eru aukin skjálftavirkni, landris og breytingar á jarðhita og gasútstreymi, en enginn þeirra er algildur.

Langtímahættumat segir hvar gos geta orðið og hvert hraun gæti runnið, en ekki hvar eða hvenær næsta gos verður. Á kvarða vikna og mánaða er stuðst við kvikubókhald. Þegar komið er niður í mínútur og klukkustundir eru það skyndilegar skjálftahrinur og þrýstibreytingar sem gefa merki.

Grindavík og Svartsengi

Veðurstofan metur hættu á eldgosi viðvarandi meðan land rís í Svartsengi og hún verður ekki afskrifuð fyrr en landsig hefur mælst í minnst sex mánuði. Á Reykjanesskaga er forspárlíkanið óvenju gott vegna þess að kvikusöfnunin hefur endurtekið sig í fyrri lotum.

Um miðjan ágúst 2026 var mat Veðurstofunnar að 29,1 milljón rúmmetra af kviku hefði safnast undir Svartsengi frá gosinu í júlí 2025. Í september var landrisið sagt um fjórir til fimm sentimetrar á þremur mánuðum. Líklegasta sviðsmyndin er áfram kvikuhlaup yfir í Sundhnúksgígaröðina með stuttum fyrirvara. Tímasetningin er veikasti hlekkurinn.

Hættumatið og sprungurnar

Heildarhættumatið sem birt var 30. september er óbreytt og hættan í Grindavík enn metin töluverð. Einn hættuþáttur hefur lækkað eftir að fyllt var í sprungur í bænum, en Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri Veðurstofunnar, telur það ekki nægja til að hreyfa við heildarmatinu.

Hún hefur jafnframt sett fram skýrt viðmið. Innflæði kviku undir Svartsengi þarf að stöðvast og landið síðan að síga þegar kvikan kólnar og storknar. Hafi landsig mælst í sex mánuði eða lengur megi telja hættuna liðna hjá, að minnsta kosti í bili. Jafnvel þótt landris stöðvaðist nú yrði hættan því tæpast afskrifuð fyrr en vorið 2027.

Deilan um fyrirvarann

Endurskoðað áhættumat, kynnt 22. september, telur að halda megi áhættu í Grindavík innan sambærilegra marka og í öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá, séu öryggisforsendur uppfylltar.

Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur telur hins vegar að þar sé byggt á röngum forsendum. Að hans mati átti slíkur samanburður aðeins við Grindavík fyrir 2020, því enn geti gossprunga opnast inni í bænum. Grindavík sé því ekki sambærileg við önnur byggðarlög sem búa við náttúruvá.

Páll gagnrýnir einnig þá forsendu að Veðurstofan geti alltaf varað við gosi fyrirfram. Kristín bendir á að á sex árum hafi verið stuðst við mörg innbyrðis óháð kerfi og reynslan af þeim verið mjög góð. Hún viðurkennir þó að kerfin gætu brugðist, þótt það sé talið afar ólíklegt og með mjög miklar afleiðingar. Í fjölmiðlarýni Vitans var bent á að Páll hefði sjálfur sagst ekki hafa lúslesið greinargerðina. Hann er líklega búinn að því þegar þetta er ritað.

Hekla

Hekla er erfiðari viðfangs. Þar er skjálftavirkni yfirleitt lítil en eykst skyndilega fyrir gos. Árið 2000 hófst hrinan rúmri klukkustund áður en gaus og tókst þá að vara við gosinu.

Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur m.m. hefur bent á að Hekla hafi þegar risið langt umfram stöðuna fyrir gosið 2000 og geti gosið hvenær sem er með stuttum aðdraganda. Þorvaldur Þórðarson telur hins vegar að fjallið hafi lokið hringrás sem hófst 1104 og þurfi nú aldir til að safna kröftum á ný. Þenslan staðfestir því kviku, en segir lítið um tímasetningu.

Jarðskjálftar

Tímasetningu brotaskjálfta, til dæmis á Suðurlandsbrotabeltinu, er ekki hægt að spá fyrir um. Þar er stuðst við líkindamat og þekkingu á misgengjum. Mælingar geta hins vegar skýrt eðli hrinu eftir að hún hefst, eins og vestan Hengils í júní 2026 þegar GPS- og gervitunglagögn sýndu engin merki um kvikuhreyfingar.

Lokaorð

Deilan um Grindavík snýst um mat á sjaldgæfu en afdrifaríku tilviki. Veðurstofan telur litlar líkur á að viðvörunarkerfin bregðist, en Páll Einarsson telur ekki forsvaranlegt að byggja búsetu og skólahald á þeirri forsendu. Viðmið Kristínar um sex mánaða landsig gefur hins vegar mælanlegan mælikvarða á hvenær umræðan getur flust frá hættu yfir á uppbyggingu.

Undirritaður er ekki jarðfræðingur en vildi ekki vita af barnabörnunum núna að leik eða sofandi í Grindavík, hvað sem nýju áhættumati líður. E.t.v. er það bara mín taugaveiklun, en flestir Íslendingar eru jú forlagatrúaðir og gera sér ekki grillur út af smámunum svo sem smávegis kvikusöfnun.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila