Ekki óttast komandi lokanir – samsærið er þegar dautt

Dr. David Martin hvetur fólk að óttast ekki, jafnvel þótt Biden stjórnin og aðrir reyni enn á ný á heimsvísu að koma á grímuskyldu, bólupassa og lokunum.

Dr. David Martin tilheyrir baráttuhópi á heimsvísu sem berst gegn ósannindum um Covid-19 og vinnur fyrir sannleikann. Hann segir fólk hafa verið blekkt með Covid-19 faraldrinum, hann hafi í raun verið settur á svið í þágu gróðahagsmuna lyfjarisanna. Hið nýja heimsfyrirkomulag risaeinokunarfyrirtækja og keyptra stjórnmálamanna í mörgum löndum ýti lýðræðinu til hliðar, vinni ekki fyrir fólkið og þvingi einhliða eigin efnahagsmarkmiðum upp á þjóðir heims.

Dr. David Martin telur (sjá myndskeið neðar á síðunni) að við megum búast við áframhaldandi tilbúnum faröldrum en hvetur til aukinnar bjartsýni, því fólk verði ekki eins auðkeypt í næsta sinn, þegar sprautum verði veifað með efni sem sagt er að virki. Síðast þegar það var gert, þá var því lofað, að bóluefnið kæmi í veg fyrir sjúkdóminn og stöðvaði smit. Hvorutveggja var rangt en þegar fólk uppgötvaði það, var orðið um seinan. Hér að neðan er stiklað á nokkrum atriðum úr efni frá facebókarsíðu Péturs Yngva Leóssonar, sem bæði birtir senuna úr myndinni 300 og hefur þýtt hluta viðtalsins við Dr. David Martin yfir á íslensku:

Nashyrningurinn ógurlegi

Dr. David Martin gerir samlíkingu á hryllingi ofureflis sem venjulegt fólk mætir við senu úr kvikmyndinni 300:

„Spartverjinn ríður á vaðið og tekur spjót og stríðs-nashyrningur úr herbúðum Xerxesar kemur hlaupandi í áttina að þessum spartverja og spartverjinn tekur sér hliðar-varðstöðu og kastar spjóti sínu sem þeyttist hátt í loft upp og það smýgur inn í höfuð nashyrningsins.

Og nashyrningurinn hleypur áfram og hann hleypur áfram og hann hleypur áfram og spartverjinn hvikar hvergi. Hann hopar ekki hót. Hann hreyfir sig ekki úr stað og hann breytti ekki einu sinni um stöðu. Þarna stendur hann, með vinstri fót fram á við. Kastarmurinn bersýnilega með krepptan hnefa.

Og þarna stendur hann og nashyrningurinn hleypur og hleypur og hleypur og hleypur og hleypur og það sem þér munuð verða vottar að á þessu dásamlega augnabliki í myndinni er að nashyrningurinn hleypur að spartverjanum og trýni nashyrningsins treðst niður í svaðið og það endar með DAUÐA nashyrningsins þar sem hann hneig niður fyrir fótum spartverjans…“

Dauður nashyrningur drepur engan

„Nashyrningurinn er löngu dauður. „Hin nýja heimsskipan“ [The New World Order]er dáin og við ættum ekki að óttast fyrirbæri sem er dautt… því að mergur málsins er þessi; þessir einstaklingar, hvort heldur sem það eru Yuval Haririar eða Klaus Shwabar, hvort heldur sem það eru Joe Bidenar eða Hunter Bidenar eða Kamalah Harrissur eða einhver annar, Bill Gatesarar þessarar veraldar -þeir tóku ákvörðun á áttunda áratugnum og snemma á níunda áratugnum- þeir ákváðu að mennirnir væru of margir og þannig að þeir urðu að finna leið til að deyða hringsneið af íbúafjöldanum…..Ég hugsa að okkur væri langhollast að halda að okkur höndum í eitt augnablik og ígrunda þá staðreynd að við erum að bregðast við gjörðum skjálfandi líks sem er laust við vitsmunalegan tilgang, sem bregst aðeins við áreiti……Stattu einfaldlega á þínu því að nashyrningurinn er ófær um að elta þig uppi. Hann er nú þegar látinn.“

Verðum að standa saman

„Fundarfrelsi er undirstaða lýðræðisríkja. Málfrelsi, undirstaða lýðræðisríkja. Það sem okkur er hollast að gera er einfaldlega að halda áfram að fjölmenna, halda samræðunum gangandi, halda áfram að minna okkur sjálf á að gamla hugafarið sé dautt. Og þegar það fer hamförum og „Whole Foods“ [eða Krónan, Bónus, Hagkaup, Costco o.s.frv.] segir: „Ykkur er skylt að bera grímu😷þegar þið gangið inn í WholeFoods. EKKI STÍGA FÆTI INN Í„ WHOLE FOODS! “ Látið það ógert. Þegar einhver segir að þú verðir að vera með þetta meðferðis til þess að fá að ganga inn í hitt… ÆÐI, LÁTIÐ ÞAÐ ÓGERT! LÁTIÐ ÞAÐ EINFALDLEGA ÓGERT. STATTU EINS OG ⚔️SPARTVERJINN 🛡og horfðu á nashyrninginn 🦏 falla frammi fyrir fætur þér og deyja👊

🎯Dr.David Martin, Ph.D. [stofnandi, forstjóri og formaður alþjóðafyrirtækisins M-CAM – samtökin hafa vaktað brot á sýklavopnasáttmálum frá og með Anthrax leka ársins 2000] #DEILIÐ🙏 GUÐ BLESSI ÍSLAND 🇮🇸 #Almannadómurhttps://rumble.com/user/PeturYngviLeosson Samantekt og þýðingu annaðist Pétur Yngvi Leósson

Sjáið viðtalið við Dr. David Martin hér að neðan:

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila