Elon Musk stefnir að „allsherjarappi“ með X Money

Elon Musk stefnir að því að breyta samfélagsmiðlinum X í svokallað „allsherjarapp“, þar sem notendur geta sinnt bankaviðskiptum, samskiptum, verslun, greiðslum og öðrum þjónustum á einum stað. Mikilvægur liður í þeirri stefnu er ný þjónusta, X Money, sem hefur nú verið opnuð fyrir takmarkaðan hóp notenda. Þetta kemur fram í frétt Zerohedge.

Býður háa innlánsvexti og endurgreiðslur

Til að laða að notendur býður X Money meðal annars 6% ársvexti á innstæður án hámarksupphæðar og 3% endurgreiðslu af kortaviðskiptum, auk þess sem innstæður eru sagðar tryggðar allt að 10 milljónum Bandaríkjadala með því að dreifa þeim á milli banka.

Greinin bendir þó á að þessi kjör séu líklega tímabundin og ætluð til að laða að fyrstu notendurna, enda sé ólíklegt að slíkir vextir og endurgreiðslur verði sjálfbærar til lengri tíma.

Byggir á fyrirmynd WeChat

Markmið Musks er að skapa þjónustu sem líkist kínverska forritinu WeChat, sem sameinar skilaboð, greiðslur, verslun, opinbera þjónustu, samfélagsmiðla og fjölda annarra daglegra verkefna í einu forriti.

WeChat er notað af yfir milljarði manna í Kína og hefur orðið lykilþáttur í daglegu lífi landsmanna. Höfundur greinarinnar telur Musk vilja endurtaka þann árangur á alþjóðavísu með X.

X er ekki banki

Þrátt fyrir að þjónustan bjóði upp á eiginleika sem líkjast bankareikningi er X Money ekki sjálfstæður banki. Þjónustan byggir á samstarfi við löggilta banka sem annast innstæður, á meðan X sér um viðmót og þjónustu við viðskiptavini.

Notendur geta þó meðal annars lagt inn fé, framkvæmt millifærslur, greitt reikninga og sent greiðslur sín á milli í gegnum þjónustuna.

Miklar áskoranir fram undan

Verkefnið stendur frammi fyrir verulegum áskorunum. Til að mynda séu öryggiskröfur miklar þegar samfélagsmiðill og fjármálaþjónusta eru sameinuð og jafnframt megi búast við harðri samkeppni frá fyrirtækjum á borð við Meta, sem gæti fljótt innleitt sambærilegar lausnir.

Þá sé bandaríski bankageirinn talinn líklegur til að verja stöðu sína með öflugri hagsmunagæslu og öðrum aðgerðum ef X nær fótfestu á fjármálamarkaði.

Miklar fjárhæðir að baki verkefninu

Sameinað félag SpaceX og X hafa nýlega aflað samtals 112 milljarða Bandaríkjadala í nýju fjármagni. Höfundur telur að sú fjárhagslega staða gefi Elon Musk svigrúm til að fjárfesta af krafti í uppbyggingu X Money, þótt óvíst sé hvort hugmyndin um allsherjarapp nái að festa sig í sessi á vestrænum mörkuðum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila