
Júlíus Valsson skrifar:
Frumvarpið um bókun 35 er komið á dagskrá Alþingis í fjórða sinn, og í fjórða sinn er okkur sagt að þetta sé tæknilegt smámál. Nú fylgir að auki stefna frá ESA fyrir EFTA-dómstólnum, svo að tæknilega smámálið hefur fengið sinn lögmann. Reynslan kennir okkur að því oftar sem ráðherra fullyrðir að mál sé tæknilegt, þeim mun meiri ástæða er til að lesa greinargerðina.
Þegar EES-samningurinn var fullgiltur 1993 hvíldi hann á áliti fjögurra lögfræðinga, Þórs Vilhjálmssonar, Gunnars G. Schram, Stefáns Más Stefánssonar og Ólafs W. Stefánssonar. Þeir töldu samninginn rúmast innan stjórnarskrárinnar af einni meginástæðu: ekkert löggjafarvald væri framselt. EES-reglur yrðu aðeins að íslenskum lögum fyrir atbeina Alþingis, sem héldi óskertu valdi sínu samkvæmt 2. gr. Bókun 35 var skoðuð sérstaklega, og nefndin las hana svo að hún krefðist ekki sjálfkrafa forgangs. Lögskýringarregla nægði. Hún varð 3. gr. laga nr. 2/1993 og hefur dugað í þrjá áratugi.
Nú kemur frumvarp sem segir að innleidd EES-regla skuli ganga framar síðari lögum, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Þögn þingsins verður þar með lesin sem undirgefni. Reglan um að yngri lög gangi framar eldri, sem hefur fylgt réttarríkjum allt frádögum frá Rómverja er nú sett á hvolf á stóru sviði íslenskrar löggjafar með einni grein.
Ríkisstjórnin á í miklum vanda
Hér lendir ríkisstjórnin í vanda sem hún hefur ekki viljað horfast í augu við. Annað hvort er reglan venjuleg lög, sem hvert Alþingi getur vikið frá með því einu að orða vilja sinn. Þá breytist ekkert, EFTA-dómstóllinn hefur þegar sýnt í Einarsson-málinu að bókun 35 krefst raunverulegs forgangs, og ESA mun áfram telja Ísland brotlegt. Eða reglan hefur þau áhrif sem ESA ætlast til, að síðari lög þurfi að víkja. Þá hefur Alþingi með almennum lögum gefið tilteknum lagaflokki stöðu sem svipar til stjórnskipunarlaga. Slíkri stöðu verður samkvæmt 79. gr. aðeins komið á með stjórnarskrárbreytingu. Frumvarpið er því annaðhvort gagnslaust eða ólögmætt. Þriðji kosturinn er ekki til, þótt ráðuneytið hafi leitað hans af kostgæfni.
Samþykktin felur auk þess í sér játningu. Fallist ESA á frumvarpið hefur Ísland viðurkennt með verkum sínum að bókun 35 krefjist almenns forgangs. Það er einmitt sá lestur sem fjórmenningarnir höfnuðu. Hvort tveggja getur ekki verið rétt í senn, að samningurinn hafi staðist stjórnarskrá 1993 af því að hann krafðist ekki forgangs, en að hann krefjist forgangs 2026. Sé síðara rétt var grunnurinn undir fullgildingunni veikari en sagt var, og við höfum síðan hlaðið ofan á hann fjármálaeftirliti, orkupökkum og bindandi ákvörðunum evrópskra stofnana, hverja viðbót réttlætta með því að hún ein og sér væri innan marka.
Stjórnarskráin er sáttmáli
Hér er rétt að staldra við og segja það skýrt sem oft gleymist í hita leiksins. Stjórnarskráin er ekki fangelsi. Hún er sáttmáli sem þjóðin hefur gert við sjálfa sig um það hvernig farið skuli með valdið, og í honum er fólgin leið til að breyta þeim sáttmála. Norðmenn fóru þá leið. Þeir settu framsalsheimild í 115. gr. stjórnarskrár sinnar áður en þeir lögfestu forgangsreglu sína í EØS-loven, og þess vegna hefur sú regla aldrei orðið að stjórnskipulegu vandamáli þar í landi. Danir hafa 20. gr. með sínum fimm sjöttu hlutum þingmanna.
Íslenska stjórnarskráin hefur enga slíka grein, og það er engin tilviljun. Þjóðin hefur aldrei verið spurð.
Vilji ríkisstjórnin forgangsreglu, þá er leiðin til þess kunn og heiðarleg þ.e. að flytja frumvarp til stjórnarskipunarlaga, rjúfa þing, ganga til kosninga og láta nýtt Alþingi staðfesta frumvarpið. Það kostar umboð frá kjósendum. Ríkisstjórn sem trúir á málstað sinn ætti að fagna því tækifæri. Ríkisstjórn sem kýs fremur að lauma forgangi inn með almennum lögum, og treystir á að Hæstiréttur verði of kurteis til að stöðva hana, segir með því meira um málstaðinn en nokkurt drottningarviðtal á Sprengisandi.
Enginn flýr stjornarskrána!
Því enginn flýr stjórnarskrána. Hún gildir jafnt fyrir ráðherra sem fiskverkanda, og engin bókun frá Brussel, ekkert rökstutt álit frá ESA og engin framsöguræða breytir þar nokkru. Standi skuldbinding samningsins utan þess sem stjórnarskráin leyfir eru úrræðin tvö. Annað er að breyta stjórnarskránni með þeim hætti sem hún sjálf mælir fyrir um. Hitt er 127. gr. EES-samningsins, uppsögn með tólf mánaða fyrirvara, og tvíhliða samningur um þá fríverslun sem atvinnulífinu er dýrmætust, eins og Svisslendingar hafa búið við lengi. Hvorugt er þægilegt. En þriðja leiðin, að láta stjórnarskrána láta undan síga í kyrrþey, er sú eina sem er í raun ófær, hversu tæknileg sem hún er sögð vera.
Suma pakka ætti aldrei að opna og sumum frumvörpum er best að sleppa því að samþykkja. Þetta er eitt þeirra, nema menn séu reiðubúnir að ganga alla leið og spyrja þjóðina.
