
Júlíus Valsson læknir skrifar:
Mjólk og tvo sykurmola? Um bollann sem bjargaði heimsveldi
Bretar hafa tapað Indlandi, Hong Kong og flestu því sem áður mátti lita bleikt á landakorti. Ein spurning stendur þó óhögguð: „Milk and two sugars?“ Hún er borin fram með sömu alvöruþunga og dómari les upp dómsorð, og sá sem svarar „black, please“ er samstundis grunaður um að hafa dvalið of lengi erlendis.
Breska þjóðin hefur staðið af sér loftárásir, kolaverkföll og þrjá forsætisráðherra á einu hausti, alltaf með ketilinn í gangi. Það er því nánast þjóðaröryggismál þegar vísindamenn fara að skoða hvað gerist eiginlega í þessum bolla? Og niðurstaðan er að mestu leyti jæakvæð. Teið sjálft er með hollari drykkjum sem mannkynið hefur fundið upp. Vandinn felst í því sem bætt er út í það.
Blöðin sem bera hollustuna
Te er að stofni til heitt vatn með laufblöðum, og laufblöðin eru þar engin aukapersóna. Þau geyma pólýfenól, einkum svonefnd katekín og teaflavín, sem rannsóknir tengja við lægri blóðþrýsting, betra kólesterólmynstur og heldur minni hættu á hjarta- og æðasjúkdómum hjá þeim sem drekka nokkra bolla á dag. Þetta eru vísindalegar, framvirkar rannsóknir, ekki kraftaverkayfirlýsingar, en niðurstöðurnar þ.e. fylgnin er furðu þrálát yfir lönd og áratugi.
Te inniheldur jafnframt amínósýruna L-þeanín, sem virðist dempa koffínið og skila frekar rólegri árvekni en skjálfandi höndum og hröðum hjartslætti. Það skýrir hvers vegna tedrykkjumaðurinn er yfirleitt kurteis en kaffidrykkjumaðurinn ara alltaf að flýta sér. Þá bætir bolli af tei vökvabúskapinn nánast eins vel og vatn, þrátt fyrir gamla þjóðtrú um annað.
Kaffi fyrir augnaðgerð
Á þessu er þó ein skemmtileg undantekning sem ég kynntist sem deildarlæknir á St. Jósefsspítalanum á Landakoti í den, sem þá var með bestu sjúkrahúsum Evrópu, áður en hvatvís vinstrisinnaður heilbrigðisráðherra batt enda á sjálfstæðan rekstur hans. Augnlæknarnir kusu kaffi fremur en te fyrir aðgerðir. Undir aðgerðarsmásjá verður minnsti handskjálfti að jarðskjálfta, og þeir töldu sig skjálfa meira eftir tedrykkju en eftir að hafa drukkið kaffi.
Teófyllín kom til álita, enda veldur það skjálfta hjá astmasjúklingum, en magnið í tei er svo lítið að skýringin er hæpin. Koffín veldur einnig skjálfta og kaffi inniheldur yfirleitt meira af því en te.
Mjólkin: mild málamiðlun
Mjólkin bætir kalki, próteini og joði (amk í Bretlandi) við bollann, og joð er ekki sjálfgefið í bresku mataræði. Skvetta af léttmjólk, tuttugu til þrjátíu millilítrar, kostar aðeins níu til fjórtán hitaeiningar. Það er hóflegt gjald fyrir þjóðarsátt.
Hún hlífir meira að segja tönnunum. Rannsókn frá 2014 sýndi að mjólk dró úr teblettum á úrteknum tönnum, því kaseín bindur tannínin sem annars lita glerunginn. Bretar réðu þannig tannahirði í bollann löngu áður en þeir vissu af honum.
Eitt skal þó nefnt. Þýsk rannsókn frá 2007 benti til þess að mjólkin drægi úr skammtímaáhrifum tes á æðavíkkun, eins og kaseínið bindi líka hluta af hollustunni. Úr þessu verður ekki lesið að mjólkurte valdi hjartasjúkdómum, en sá sem vill fá allt sem laufblöðin bjóða gæti sleppt mjólkinni í öðrum hverjum bolla og látið sem það sé smekksatriði.
Sykurinn: þar sem brosið hverfur
Hér verður hollustan að víkja. Tvær sléttfullar teskeiðar eru um átta grömm og þrjátíu og tvær hitaeiningar. Fimm bollar á dag gefa fjörutíu grömm af sykri og nálægt sextíu þúsund hitaeiningum á ári, og það áður en kexdallurinn er opnaður. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ráðleggur að frjálsar sykrur fari ekki yfir tíu prósent daglegrar orku og sér frekari ávinning undir fimm prósentum. Tedrykkjumaður með tvo mola er kominn yfir strangara viðmiðið fyrir hádegi.
Sykurinn nærir auk þess munnbakteríur sem mynda sýru. Sé sykrað te sopið allan daginn verða sýruárásirnar jafntíðar og fréttaflutningur af konungsfjölskyldunni. Tannlæknirinn brosir kurteislega og hugsar um sumarbústaðinn.
Sykurinn á sér sögulega vörn. Sætt te veitti verkafólki iðnbyltingarinnar hlýju og ódýra orku. Sú afsökun hefur elst verr en postulínið.
Hvað á að setja fyrst í tebollann?
Mjólkin fór fyrst í ódýru bollana svo þeir spryngju ekki, en fína postulínið þoldi teið og mjólk á eftir varð stéttaryfirlýsing. Orwell mælti árið 1946 með að hella mjólkinni á eftir, Konunglega efnafræðifélagið árið 2003 með henni á undan.
Jafnvel ISO-staðall hefur verið saminn um telögun. Þjóð sem átti heimsveldi lætur tebollann ekki afskiptalausan.
Niðurstaðan er einföld. Teið er hollt, mjólkin skaðlaus og sykurinn vandamálið. Minnkið hann smám saman þar til spurningunni „Milk and two sugars?“ má svara með góðri samvisku: „Just milk, thanks.“
Það er kurteist, hjartavænt og skilur eftir svigrúm fyrir kexið.
