Er kaffisopinn hollur? – Hvað segja læknavísindin núna um það?

Júlíus Valsson læknir skrifar:

Íslendingar hafa lengi verið í hópi mestu kaffidrykkjuþjóða heims og ættu því að taka nýrri yfirlýsingu bandarísku hjartasamtakanna (AHA) fagnandi. Samtökin birtu í júlí vísindalegt yfirlit um koffín og hjarta- og æðasjúkdóma, og læknatímaritið JAMA gerði því skil nú í september. Niðurstaðan er sú að hófleg neysla, allt að 400 mg á dag eða sem svarar þremur til fimm kaffibollum, sé örugg fyrir flesta fullorðna. Hún tengist jafnframt minni hættu á kransæðasjúkdómi, heilablóðfalli, hjartabilun, gáttatifi, háþrýstingi og sykursýki af tegund 2. Mörkin eru hin sömu og Matvælaöryggisstofnun Evrópu miðar við, en barnshafandi konum er ráðlagt að halda sig við helming þess magns.

Hvaða gögn liggja fyrir?

Gregory Marcus, hjartalæknir við Kaliforníuháskóla í San Francisco og fyrsti höfundur greinarinnar, leggur áherslu á að yfirlýsingin sé samantekt á bestu fáanlegu gögnum en hafi ekki stöðu klínískra leiðbeininga. Gögnin eru að mestu úr áhorfsrannsóknum á kaffidrykkju og slíkar rannsóknir sýna fylgni án þess að sanna orsakasamband. Enn er óljóst hvort koffínið sjálft eigi heiðurinn eða önnur efni í baununum og telaufunum, til dæmis pólýfenól, sem eru öflug andoxunarefni.

Á einu sviði eru gögnin þó sterkari. Fólki með hjartsláttartruflanir var lengi ráðlagt að forðast kaffi, en í slembirannsókninni DECAF, sem birtist í JAMA í fyrra, kom gáttatif í raun sjaldnar aftur eftir rafvendingu hjá þeim sem héldu áfram að drekka kaffi en hjá hinum sem hættu.

Kaffisían skiptir máli

Ekki er sama hvernig hellt er upp á. Ósíað kaffi, svo sem pressukönnukaffi, tyrkneskt kaffi og gamla ketilkaffið, hækkar LDL-kólesteról í slembirannsóknum. Sökudólgurinn er efnið cafestol, sem situr eftir í pappírssíunni; skyndikaffi er einnig laust við það. Þessi fróðleikur norrænn að uppruna, því það voru rannsóknir í Tromsø á níunda áratugnum sem fyrst tengdu kaffi við hátt kólesteról og síðar kom á daginn að soðna kaffið átti sökina. Sykur, síróp og rjómi geta svo hæglega étið upp ávinninginn.

Morgunbollinn

Yfirlýsingin fjallar ekki um tímasetningu, en rannsókn frá 2025 á tæplega 41 þúsund Bandaríkjamönnum bendir til að hún skipti máli. Dánartíðni var lægri áratug síðar hjá þeim sem drukku kaffið sitt fyrir hádegi en bæði hjá þeim sem drukku ekkert kaffi og hinum sem dreifðu drykkjunni yfir daginn. Höfundar telja skýringuna liggja í svefninum. Helmingunartími koffíns er að jafnaði um fimm klukkustundir en afar breytilegur. Hann ræðst meðal annars af erfðabreytileika í lifrarensíminu CYP1A2, styttist við reykingar og lengist til muna á meðgöngu. Hjá sumum er síðdegisbollinn því enn að verki um miðnætti.

Orkudrykkir eru allt annað mál

Höfundar vara eindregið við því að yfirfæra niðurstöðurnar á orkudrykki. Gögn um þá eru takmörkuð en benda fremur til skaða á hjarta og æðum, og í þeim eru oft önnur örvandi efni auk koffíns. Þessi varnagli á brýnt erindi hér á landi. Áhættumat sem unnið var fyrir Matvælastofnun árið 2020 sýndi að neysla íslenskra ungmenna í 8.–10. bekk á orkudrykkjum væri með því mesta sem þekkist í Evrópu og að sterkt samband væri milli hennar og lítils svefns. Um 30% nemenda í 8. bekk og um helmingur í 10. bekk drukku slíka drykki. Sölubann til yngri en 18 ára nær eingöngu til drykkja með meira en 320 mg af koffíni í lítra. Quebec varð í sumar fyrsta ríkið í Norður-Ameríku til að setja 16 ára aldursmark á orkudrykki og Bretar fylgja á eftir í apríl.

Engin ástæða til að byrja

Marcus tekur skýrt fram að gögnin dugi ekki til að ráðleggja neinum að hefja koffínneyslu eða auka hana. Fólk bregst afar misjafnlega við efninu og flestir stilla neysluna sjálfir af eftir því hvernig þeim líður. Skilaboðin til þeirra sem þegar njóta kaffis eða tes eru hófstillt og góð: náttúrulegt koffín í hófi skaðar hjartað að öllum líkindum ekki og kann að verja það gegn ýmsu.

ref.
September 18, 2026. doi:10.1001/jama.2026.16716

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila