
Áform Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) um að fá einkafjárfesta inn í rekstur heimsmeistaramótanna í knattspyrnu hafa mætt harðri gagnrýni innan Evrópusambandsins. Tillagan felur í sér að nýtt dótturfélag taki yfir viðskiptaleg réttindi og rekstur heimsmeistaramóta karla og kvenna. Fjárfestingafélagið Thrive Capital, undir forystu Josh Kushner, bróður Jared Kushner tengdasonar Donalds Trump Bandaríkjaforseta, er sagt ætla að leiða fjárfestinguna. Þetta segir í frétt Politico.
Framkvæmdastjóri íþróttamála ESB segist vilja verja knattspyrnuna
Glenn Micallef, framkvæmdastjóri ESB í íþróttamálum, gagnrýndi áformin harðlega. „Viðskiptalegur árangur á að styrkja knattspyrnuna en ekki gleypa hana. Hendurnar frá leiknum okkar,“ sagði hann.
Hann bætti við að tillagan kynni einnig að vekja spurningar samkvæmt samkeppnislögum Evrópusambandsins og að framkvæmdastjórnin myndi fara yfir málið.
Kalla eftir skýringum frá Infantino
Nokkrir þingmenn Evrópuþingsins segja Gianni Infantino, forseta FIFA, þurfa að skýra áformin fyrir þinginu.
Rasmus Andresen, þingmaður græningja frá Þýskalandi, segir að ef upplýsingarnar reynist réttar verði Infantino að svara spurningum þingmanna. Barry Andrews og Nela Riehl hafa jafnframt boðað tillögu um að kalla forseta FIFA fyrir sameiginlegan fund nefnda Evrópuþingsins eins fljótt og auðið er.
FIFA heldur eftir meirihlutanum
Samkvæmt tillögunni yrðu viðskiptaréttindi og rekstur heimsmeistaramótanna færð yfir í nýtt félag sem nefnist FIFA Forward Enterprise.
Einkafjárfestar myndu eignast um 20 prósenta hlut í félaginu en FIFA myndi áfram halda meirihlutaeign og stjórn yfir starfseminni.
Vill fá samþykki aðildarsambandanna
Til að auka líkurnar á samþykki aðildarsambanda FIFA hefur Infantino lagt til verulega aukningu á þróunarstyrkjum.
Verði tillagan samþykkt gæti hvert af 211 aðildarsamböndum FIFA fengið allt að 20 milljónir Bandaríkjadala í einskiptisframlag auk aukinna greiðslna á næstu árum.
Gagnrýnendur segja hins vegar að atvinnuknattspyrnan hafi á síðustu tveimur áratugum færst sífellt nær ofurkapítalisma og óttast að einkafjárfesting í rekstri heimsmeistaramótanna muni hraða þeirri þróun enn frekar.
