ESB ógnar réttarríkinu í Póllandi

Júlíus Valsson skrifar:

Réttarríkið verður ekki endurreist af þeim sem veita sjálfum sér undanþágu frá reglum þess.

Í Varsjá er nú leyst úr stjórnskipulegum ágreiningi með aðferð sem allir húsverðir þekkja vel þ.e að sá sem heldur á lyklunum, hann ræður yfir húsinu. Kvöldið 30. október tilkynnti Anna Korwin-Piotrowska, umdeildur dómari við pólska stjórnlagadómstólinn, að forseti stjórnlagadómstóls Póllands, Bogdan Święczkowski, og varaforseti hans væru leystir frá störfum og að hún tæki sjálf við stjórn dómstólsins. Svo vill til að hún hafði sjálf aldrei unnið embættiseið. Þingið hafði kjörið hana, en forseti lýðveldisins neitað að taka eið af henni. Á meðan stóð lögreglan vörð við bygginguna.

Rök stjórnarliða eru vel þekkt. Ríkisstjórn PiS hafi lagt dómstólinn undir sig og Karol Nawrocki forseti aðeins tekið eið af tveimur þeirra sex dómara sem þingið kaus í mars. Því verði að ryðja hindrunum úr vegi. Fyrri valdhafar léku dómstólinn vissulega grátt. Sú staðreynd heimilar þó engu dómaraefni að setjast sjálft í forsetastól og víkja þeim frá sem fyrir sitja. Í réttarríki er það einmitt aðferðin sem ræður úrslitum. Sá sem tekur sér vald sem honum var aldrei falið hefur þegar tapað rökræðunni um lögmæti, hversu göfugur sem tilgangurinn kann að vera.

Ábyrgð Donald Tusk

Donald Tusk ber á þessu fulla pólitíska ábyrgð. Hann lofaði Pólverjum betri stjórnarháttum. Nú horfa þeir á lögregluvörð við æðstu stofnun ríkisins og ráðherra sem skýra málið með vísan til góðs ásetnings.

Nawrocki sneri heim úr Senegalför og sagði stjórnskipunina hafa verið brotna og stofnun tekna með valdi. Tveir sendiherrar, Jakub Kumoch í Peking og Paweł Soloch í Búkarest, sögðu af sér. Menn kasta ekki frá sér sendiherrastöðum af hégóma. Framkvæmdastjórn ESB lét sér hins vegar nægja að árétta vald þingsins til að kjósa dómara. Brussel hafði árum saman haft hástemmdar skoðanir á pólskum dómstólum. Nú, þegar „réttur“ maður stendur við stjórnvölinn, dugir hófstillt orðalag.

Hvað með Ísland?

Þar liggur lærdómurinn fyrir Ísland. Réttarríkið, eins og það er skilgreint í Evrópu, reynist teygjanlegt hugtak (líkt og fullveldið) sem þrengist þegar óþægir sitja að völdum og víkkar þegar þægir eiga í hlut.

Hér heima er bókun 35 enn á ný komin á dagskrá. Efnið virðist sakleysislegt. Ný grein í EES-lögin á að kveða á um að þegar lagaákvæði sem innleiðir EES-reglu stangast á við annað lagaákvæði skuli EES-ákvæðið ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað.

Í þessari einu setningu felst meiri bylting en flestir gera sér grein fyrir. Frá stofnun lýðveldisins hefur sú regla gilt að yngri lög gangi framar eldri lögum. Alþingi sem kemur saman í dag getur breytt því sem fyrra þing ákvað. Þannig virkar lýðræðið í sinni einföldustu mynd, enda skipta kjósendur um þingmenn og þingmenn um lög. Verði frumvarpið samþykkt fá reglur, sem samdar eru án nokkurrar aðkomu íslenskra kjósenda, forgang fram yfir síðari lagasetningu Alþingis. Dómstólar munu meta hvenær árekstur sé fyrir hendi og hvor reglan víki. Löggjafarvaldið, sem 2. gr. stjórnarskrárinnar felur Alþingi og forseta sameiginlega, færist þar með að hluta í hendur dómaranna.

Framsal á löggjafavaldi eða ekki?

Kaldhæðnin felst í texta bókunarinnar sjálfrar. Þar segir að markmiðinu skuli náð án þess að nokkur samningsaðili þurfi að framselja löggjafarvald til stofnana EES. Á því fyrirheiti var samningurinn kynntur Íslendingum árið 1993. Nú á að efna það með því að flytja valdið frá Alþingi til dómstóla sem síðan lesa íslensk lög með gleraugum Evrópuréttar. Íslenskir kjósendur hafa aldrei veið spurðir álits en þeir hafa þó alfarið hafnað viðræðum um aðild að ESB, sem ætti að duga.

Ástandið í Póllandi nú sýnir hvernig fer þegar stofnanir hætta að virða valdheimildir hver annarrar og erlendir aðilar velja sér hlið eftir hentugleikum. Ísland býr enn við stjórnskipun þar sem verkaskipting er skýr. Hana ætti enginn að hringla með í þeirri trú að vel meinandi ásetningur og fagurgali nægi.

Þess vegna ber Alþingi að hafna Bókun 35!

Líkt og utanríkisráðherra Íslands taldi Tusk sig líka vera að bjarga réttarríkinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila