ESB reynir að kaupa Grænland

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir ESB ætla að standa við loforð sitt um umfangsmikinn stuðning við Grænland. Framkvæmdastjórnin hefur þegar lagt til 530 milljóna evra stuðning á árunum 2028 til 2034 og samkvæmt Financial Times stendur til að bæta 200 milljónum evra við. Samtals jafngildir það yfir 100 milljörðum íslenskra króna. Þetta kemur fram í grænslenska miðlinum KNR.

Von der Leyen kom til Nuuk í dag í 2 daga heimsókn ásamt Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, tók á móti þeim. Á morgun verður fundað um aukið samstarf Grænlands og ESB og þar verður gengið endanlega frá samningnum. Nánari upplýsingar um fjárfestingar ESB verða jafnframt kynntar.

Heimsóknin fer fram á sama tíma og Grænland hefur fengið sífellt meira vægi í alþjóðlegri valdabaráttu á norðurslóðum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað lýst yfir áhuga Bandaríkjanna á Grænlandi og vísað til þjóðaröryggishagsmuna Bandaríkjanna.

Von der Leyen segist vera að standa við loforðið

KNR greinir frá því að von der Leyen hafi við komuna rifjað upp síðustu heimsókn sína til Grænlands árið 2024. Þá opnaði hún meðal annars skrifstofu ESB í Nuuk og hét því að koma aftur með umfangsmikinn pakka fyrir Grænland.

„Þegar ég var hér fyrir 2 árum lofaði ég að ég myndi koma aftur með umfangsmikinn pakka. Í dag get ég sagt að ég get staðið við það loforð,“ sagði von der Leyen.

Hún sagði Grænland og ESB eiga langt vinasamband að baki, deila sömu gildum og hafa unnið náið saman að því að styrkja sambandið til framtíðar.

Jens-Frederik Nielsen sagði heimsóknina sömuleiðis sýna hversu náin tengslin við ESB væru.

„Heimsóknin markar mjög nána vináttu og náið samstarf sem við viljum byggja áfram á,“ sagði Nielsen.

Yfir 100 milljarðar í fyrirhugaðan stuðning

ESB veitir Grænlandi þegar 225 milljónir evra í stuðning á núverandi fjárhagstímabili til ársins 2027.

Framkvæmdastjórnin hefur lagt til að stuðningurinn verði aukinn í 530 milljónir evra á næsta fjárlagatímabili ESB frá 2028 til 2034. Það jafngildir um 74,5 milljörðum íslenskra króna.

Financial Times hefur auk þess greint frá því að von der Leyen hyggist leggja til 200 milljóna evra viðbótarstuðning við Grænland, eða tæplega 30 milljarða íslenskra króna.

Ef hvort tveggja gengur eftir verður umfang fyrirhugaðs stuðnings því um 730 milljónir evra eða yfir 100 milljarðar íslenskra króna.

Samningurinn kláraður á morgun

Á morgun verður haldinn fundur þar sem gengið verður endanlega frá samkomulagi Grænlands og Evrópusambandsins. Þar verða einnig kynntar nánari upplýsingar um fjárfestingar og aukið samstarf.

Áherslur ESB gagnvart Grænlandi hafa breikkað verulega frá síðustu heimsókn von der Leyen. Árið 2024 voru menntun, loftslagsmál og hráefni meðal helstu samstarfsmála en síðan hefur öryggisstaðan á norðurslóðum fengið mun meira vægi.

Grænland býr yfir mikilvægum hráefnum og lega landsins hefur mikla hernaðarlega þýðingu. Grænlensk og bandarísk stjórnvöld eiga jafnframt í viðræðum um framtíðarviðveru bandaríska hersins á Grænlandi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila