
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hvatti aðildarríki sambandsins í dag til að taka upp sameiginlegt aldursstaðfestingarkerfi frá Brussel til að framfylgja takmörkunum á aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Henna Virkkunen, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði kerfið nú tilbúið til notkunar og að aðildarríki gætu aðlagað það að eigin reglum áður en það yrði tekið í notkun. Þetta kemur fram á vef Politico.
Samkvæmt framkvæmdastjórninni á kerfið að tryggja að aldursreglur á netinu verði samræmdar innan Evrópu á sama tíma og friðhelgi einkalífs verði vernduð. Markmiðið sé að koma í veg fyrir að börn fái aðgang að efni sem ekki sé ætlað þeim.
Öryggisgallar vöktu gagnrýni
Mörg Evrópuríki hafa undanfarið skoðað leiðir til að sannreyna aldur notenda á netinu vegna vaxandi áhyggja af áhrifum samfélagsmiðla á geðheilsu barna og ungmenna. Framkvæmdastjórn ESB kynnti aldursstaðfestingarforritið formlega í apríl og sagði það tæknilega tilbúið til notkunar. Sjálfstæðir sérfræðingar bentu hins vegar síðar á öryggis- og persónuverndargalla í kerfinu.
Framkvæmdastjórnin hafnaði gagnrýninni að hluta og sagði um tilraunaútgáfu hafa verið að ræða sem yrði áfram þróuð og uppfærð.
Aðildarríkin vilja eigin lausnir
Samkvæmt upplýsingum frá embættismönnum í átta aðildarríkjum ríkir þó tregða gagnvart lausn framkvæmdastjórnarinnar og vilja mörg ríki frekar þróa eigin innlend kerfi. Framkvæmdastjórnin hefur engu að síður lagt til að ríkin taki upp sameiginlega evrópska lausn annað hvort sem sjálfstætt forrit eða sem hluta af samevrópsku stafrænu auðkenni sem nú er í þróun.
Virkkunen sagði jafnframt að framkvæmdastjórnin hygðist birta lista yfir aldursstaðfestingarkerfi sem uppfylltu strangar kröfur um öryggi og persónuvernd. Þar yrðu bæði opinberar og einkareknar lausnir samþykktar.
Meta sakað um að verja börn ekki nægilega
Í sérstakri tilkynningu í dag varaði framkvæmdastjórn ESB einnig Meta við því að fyrirtækið gerði ekki nóg til að koma í veg fyrir að börn undir 13 ára aldri noti Facebook og Instagram. Framkvæmdastjórnin sagði Meta þurfa að breyta hönnun samfélagsmiðlanna ella gæti fyrirtækið átt yfir höfði sér sektir.
