
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirbýr nýjar aðgerðir til að takmarka innflutning á efnavörum og iðnaðarvélum frá Kína í því skyni að vernda evrópskan iðnað gegn vaxandi samkeppni kínverskra framleiðenda. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, hyggst kynna áformin fyrir leiðtogum ESB í kjölfar samkomulags við kínversk stjórnvöld um að takmarka innflutning á tvinnbílum frá Kína. Kínversk fyrirtæki hafa á undanförnum árum aukið markaðshlutdeild sína verulega í Evrópu og hafa meðal annars tekið fram úr þýskum framleiðendum á alþjóðlegum markaði fyrir iðnaðarvélar. Þetta kemur fram í frétt Politico, sem hefur rætt við tvo aðila með þekkingu á viðræðum innan framkvæmdastjórnarinnar. Samkvæmt heimildum miðilsins verða efnavörur og iðnaðarvélar meðal þeirra atvinnugreina sem ESB hyggst leggja mesta áherslu á að verja gegn auknum innflutningi frá Kína.
Vilja geta gripið hratt til innflutningstakmarkana
Framkvæmdastjórnin telur að sérstakar verndarráðstafanir í viðskiptum séu áhrifaríkasta leiðin til að bregðast við auknum innflutningi kínverskra vara. Slíkar ráðstafanir geta meðal annars falist í innflutningskvótum og tollum sem lagðir eru á vörur þegar innflutningur fer yfir ákveðin mörk.
Kosturinn við þessar aðgerðir er að hægt er að beita þeim tiltölulega hratt og þær geta náð til heilla atvinnugreina. Evrópsk stjórnvöld hafa kallað eftir því að fleiri atvinnugreinar verði verndaðar gegn kínverskri samkeppni, sérstaklega þar sem viðskiptahalli Evrópusambandsins gagnvart Kína heldur áfram að aukast.
Von der Leyen hyggst samkvæmt heimildum Politico gera leiðtogum sambandsins grein fyrir þeim möguleikum sem framkvæmdastjórnin hefur til að vernda evrópska efnaframleiðslu og vélaiðnað.
Kína tók fram úr Þýskalandi í útflutningi iðnaðarvéla
Áhyggjur evrópskra stjórnvalda tengjast meðal annars þeirri þróun að kínverskir framleiðendur hafa náð sífellt sterkari stöðu á alþjóðlegum mörkuðum.
Samkvæmt tölum þýsku samtakanna VDW, sem eru samtök framleiðenda vélbúnaðar til málmvinnslu, tók Kína fram úr Þýskalandi sem stærsti útflytjandi slíkra véla í heiminum árið 2025.
Útflutningur Kínverja jókst um 13% og nam 8,6 milljörðum evra, á sama tíma og útflutningur Þjóðverja dróst saman um 10% og nam 7 milljörðum evra.
Þróunin hefur vakið áhyggjur í Þýskalandi, þar sem framleiðsla iðnaðarvéla hefur lengi verið ein af mikilvægustu atvinnugreinum landsins og stór hluti útflutningstekna byggst á sölu sérhæfðs vélbúnaðar.
Kínverskar efnavörur sækja einnig á
Svipuð þróun hefur átt sér stað í evnaiðnaði, þar sem kínverskir framleiðendur hafa aukið hlutdeild sína í innflutningi Evrópusambandsins verulega.
Á síðustu tíu árum hefur hlutdeild Kína í innfluttum efnavörum til ESB tvöfaldast og nemur nú um 18%.
Framkvæmdastjórnin hefur þegar hafið undirbúning að mögulegum verndarráðstöfunum vegna innflutnings á plastefnum og epoxýresínum frá Kína. Engin formleg rannsókn, sem þyrfti að fara fram áður en viðskiptaaðgerðir yrðu ákveðnar, hefur þó enn verið hafin.
Áhyggjur af auknum kínverskum innflutningi ná einnig til annarra atvinnugreina. Embættismaður hjá framkvæmdastjórninni sagði í vikunni að kvartanir hefðu borist frá evrópskum framleiðendum vindorkubúnaðar og húsgagna vegna samkeppni frá kínverskum fyrirtækjum.
Samkomulag um að takmarka innflutning kínverskra tvinnbíla
Áformin koma í kjölfar samkomulags sem Maroš Šefčovič, framkvæmdastjóri ESB á sviði viðskiptamála, náði við kínversk stjórnvöld í Peking í síðustu viku.
Samkvæmt samkomulaginu verður innflutningur kínverskra tvinnbíla til Evrópusambandsins takmarkaður við 350 þúsund bíla á næsta ári. Það er innan við helmingur þess fjölda sem búist er við að verði fluttur inn á þessu ári.
Gert er ráð fyrir að innflutningskvótinn verði studdur með tollum á þá bíla sem fluttir verða inn umfram leyfilegt magn.
Šefčovič hefur sagt að endanlegar verndarráðstafanir vegna tvinnbílanna eigi að liggja fyrir í desember og að þær verði í samræmi við reglur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Hann hefur jafnframt lýst samkomulaginu við Kína sem fyrirmynd að sambærilegum lausnum fyrir aðrar atvinnugreinar.
Óvíst hvort Kína samþykki frekari takmarkanir
Ekki liggur fyrir hvort kínversk stjórnvöld hafi samþykkt eða séu tilbúin að ræða sambærilegar takmarkanir á innflutningi efnavara og iðnaðarvéla.
Lynn Song, aðalhagfræðingur ING-bankans í málefnum Kína, telur ólíklegt að Peking samþykki að samkomulagið um tvinnbíla verði notað sem fyrirmynd að víðtækum innflutningstakmörkunum á fleiri vöruflokkum.
Hann bendir á að kínversk stjórnvöld hafi verið tilbúin að ræða takmarkanir á tvinnbílum vegna þess hversu mikið innflutningur þeirra til Evrópu hefur aukist á þessu ári.
„Á einhverjum tímapunkti mun Kína líklega setja mörkin. Það er ólíklegt að við sjáum slíka kvóta á fjölmörgum vöruflokkum,“ sagði Song.
Hann telur að kínversk stjórnvöld vilji forðast að skapa fordæmi sem gæti leitt til þess að Evrópusambandið setji sambærilegar takmarkanir á fleiri kínverskar útflutningsvörur.
Framkvæmdastjórnin hefur ekki staðfest áformin
Þótt undirbúningur sé hafinn að mögulegum aðgerðum vegna efnavara og iðnaðarvéla hafa engar endanlegar ákvarðanir verið teknar. Ekki hefur heldur verið skýrt hvort framkvæmdastjórnin hyggist semja við Kína um innflutningskvóta eða beita einhliða viðskiptavörnum.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vildi ekki tjá sig um málið þegar Politico leitaði eftir viðbrögðum.
