
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill heimila opinberum aðilum innan sambandsins að veita evrópskum fyrirtækjum forgang í útboðum og útiloka fyrirtæki frá ríkjum sem veita evrópskum fyrirtækjum ekki sambærilegan aðgang að sínum mörkuðum. Tillagan beinist ekki síst að kínverskum fyrirtækjum og kínverskum vörum. Þetta kemur fram í umfjöllun Euronews.
Tillagan var kynnt á miðvikudag og nær til opinberra innkaupa í mikilvægri þjónustu á borð við orku- og vatnsveitur, járnbrautir, hafnir, flugvelli og póstþjónustu.
Opinber innkaup innan ESB nema um 2.000 milljörðum evra á ári og samsvara um 15% af vergri landsframleiðslu sambandsins. Breytingin gæti því haft veruleg áhrif á aðgang erlendra fyrirtækja að evrópskum markaði.
Sveitarfélög gætu hafnað kínverskum fyrirtækjum
Stéphane Séjourné, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, segir að opinbert fé eigi að þjóna sameiginlegum hagsmunum Evrópu.
Samkvæmt tillögunni gætu opinberir kaupendur meðal annars útilokað fyrirtæki vegna þess frá hvaða ríki þau koma eða hvaðan vörurnar sem þau bjóða eiga uppruna sinn.
Séjourné nefnir Kína sérstaklega og segir sveitarfélag geta útilokað kínverskt fyrirtæki frá útboði. Sama gæti átt við um evrópskt fyrirtæki sem byði kínverskar vörur.
Evrópskum tilboðum mætti jafnframt veita aukið vægi við mat tilboða gagnvart samkeppnistilboðum frá ríkjum utan sambandsins.
Verð á ekki lengur að ráða mestu
Framkvæmdastjórnin vill einnig breyta því hvernig tilboð eru metin. Að minnsta kosti 30% mats á vörum í opinberum útboðum ætti samkvæmt tillögunni að byggjast á gæðum en ekki eingöngu verði.
Séjourné segir markmiðið að besta hlutfall gæða og verðs verði ráðandi fremur en lægsta verðið eitt og sér. Einnig verði hægt að taka tillit til félagslegra og umhverfislegra þátta og þess sem hann kallar fullveldis- og öryggishagsmuni Evrópu.
Breytingin gæti komið sérstaklega niður á ódýrum kínverskum vörum sem hafa átt auðveldara með að keppa á grundvelli verðs.
ESB með um milljarðs evra viðskiptahalla á dag gagnvart Kína
Tillagan kemur fram á sama tíma og viðskiptaspenna milli ESB og Kína hefur aukist. Viðskiptahalli sambandsins gagnvart Kína nemur um einum milljarði evra á dag og stjórnvöld í Brussel hafa leitað leiða til að verja evrópskan iðnað gegn kínverskri samkeppni.
Framkvæmdastjórnin kynnti í mars aðra tillögu um forgang evrópskrar framleiðslu í mikilvægum atvinnugreinum, meðal annars grænni tækni, bílaiðnaði og orkufrekum iðnaði. Kínversk stjórnvöld brugðust hart við þeirri tillögu og hótuðu gagnaðgerðum.
Kínverjar mótmæla
Viðbrögð frá Kína við nýju tillögunni létu heldur ekki á sér standa. Kínverska viðskiptaráðið gagnvart ESB segir að forgangur evrópskra fyrirtækja geti raskað samkeppnisstöðu kínverskra fyrirtækja á evrópskum útboðsmarkaði.
Samtökin segja opinber innkaup ekki eiga að mismuna fyrirtækjum eða vörum eftir þjóðerni fyrirtækisins eða upprunalandi vörunnar.
Tillagan verður ekki að lögum nema Evrópuþingið og ráð ESB samþykki hana. Maroš Šefčovič, viðskiptastjóri ESB, fer til Kína í byrjun október þar sem stefnt er að pólitísku samkomulagi um að koma meira jafnvægi á viðskiptasamband Kína og Evrópusambandsins.
