Evrópa skuldsetur sig á meðan innviðirnir hrynja

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara, í síðdegisútvarpinu, um stöðu ríkisfjármála og innviða í Evrópu. Guðbjörn sagði skuldsetningu víða orðna alvarlega á sama tíma og grunninnviðir hefðu verið látnir grotna niður árum og áratugum saman. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vaxtabyrðin eykur skuldirnar

Guðbjörn sagði stóran hluta fjárlaga þýska ríkisins fjármagnaðan með lántökum og taldi þróunina ekki sjálfbæra til lengdar.

Hann sagði vandann enn meiri í Frakklandi þar sem skuldastaðan væri mun verri. Arnþrúður nefndi að skuldir Frakklands væru komnar í 119% af landsframleiðslu og Guðbjörn sagði vaxtabyrðina orðna slíka að skuldirnar gætu haldið áfram að aukast vegna vaxta og vaxtavaxta.

Þannig gætu skuldir vaxið milli ára jafnvel þótt ekki væri ráðist í samsvarandi nýja lántöku.

Innviðirnir látnir sitja á hakanum

Guðbjörn sagði vandann ekki aðeins sjást í ríkisfjármálunum heldur einnig í ástandi innviða.

Hann vísaði til mótmæla ungs fólks í Frakklandi og sagði skóla og aðra innviði þar vera í slæmu ástandi. Sömu þróun mætti sjá í Þýskalandi og víðar í Evrópu.

Guðbjörn sagði Ísland ekki undanskilið og nefndi Kársnesskóla, þar sem hann hóf sjálfur skólagöngu, sem dæmi. Þar hefði mygluvandi orðið svo mikill að húsið varð ekki lengur nothæft með óbreyttum hætti.

Vandinn nær út fyrir Evrópu

Guðbjörn sagði þetta stærra vandamál á Vesturlöndum en ekki eitthvað sem bundið væri við einstakt ríki.

Hann nefndi Bandaríkin einnig í þessu samhengi og vísaði til umræðu þar um illa farna brýr, járnbrautir og aðra innviði samhliða því að störf hefðu verið flutt úr landi.

Guðbjörn taldi þróunina hafa staðið lengi og að ekki væri hægt að skýra hana með ákvörðunum einnar ríkisstjórnar eða eins stjórnmálaflokks.

Mistök safnast upp í áratugi

Arnþrúður benti á að vandinn hefði þróast undir ýmsum ríkisstjórnum og Guðbjörn tók undir að um mun lengra tímabil væri að ræða.

Hann sagði mörg mistök hafa verið gerð af stjórnmálamönnum í áratugi og kjósendur bæru einnig ábyrgð á þeirri stefnu sem hefði verið kosin.

Guðbjörn telur því að ekki dugi að leita að einum sökudólgi þegar skuldastaða versnar og innviðir láta á sjá. Vandinn hafi byggst upp yfir langan tíma og breytingar taki því einnig tíma.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila