
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur ræddu í síðdegisútvarpinu i dag að breyta Evrópusambandinu í átt að hernaðarbandalagi og möguleg áhrif þess á Ísland. Vísað var til fundar leiðtoga Evrópusambandsins á Kýpur þar sem rætt var um að efla hernaðarlegt samstarf. Arnþrúður lagði sérstaka áherslu á hættuna af fjármögnun slíkrar uppbyggingar með lántökum frá ESB á meðan Guðmundur beindi sjónum að pólitískum og kerfislegum afleiðingum þróunarinnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fundað á Kýpur um aukið varnarsamstarf ESB ríkja
Guðmundur sagði frá fundi á Kýpur þar sem leiðtogar Evrópusambandsins hefðu rætt hvernig efla mætti sameiginlega varnargetu og samhæfa aðgerðir í öryggismálum. Hann sagði þetta merki um að sambandið væri að færast í átt að því að verða hernaðarbandalag. Að hans mati gæti þessi þróun haft í för með sér aukna miðstýringu og breytt eðli sambandsins til lengri tíma.
Ísland þarf að varast gylliboð um lán
Arnþrúður benti í því sambandi á fjármögnunarhliðina og varaði við því að slík hernaðaruppbygging yrði fjármögnuð með lánum frá ESB. Hún sagði að smáríkjum eins og Íslandi gæti verið boðin þátttaka í verkefnum með hagstæðum lánskjörum í upphafi, en raunverulegur kostnaður kæmi síðar fram hjá skattgreiðendum. Hún taldi að með því gætu ríki skuldbundið sig til langs tíma án þess að heildaráhrifin væru ljós.
Áhrifin á Ísland
Guðmundur varaði við því hvernig þátttaka í slíkum kerfum gæti haft áhrif á fullveldi og ákvarðanatöku. Aukin samhæfing gæti þýtt að ákvarðanir um útgjöld og stefnu færðust að hluta til, út fyrir landsteinana. Arnþrúður lagði á móti áherslu á að fjárhagslegar skuldbindingar væru kjarninn í málinu og þær gætu haft bein áhrif á ríkisfjármál og almenning.
Mikilvægt að sýna varfærni
Í þættinum var lögð áhersla á að mikilvægt væri að fara varlega í frekari þátttöku í slíkum hernaðarverkefnum.Ísland þyrfti að meta vandlega hvaða skuldbindingar fylgdu þróuninni innan Evrópusambandsins áður en tekin yrðu frekari skref.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
