
Evrópuþingið hefur sætt harðri gagnrýni eftir að laganefnd þingsins lagðist gegn því að aflétta friðhelgi þýska þingmannsins Angeliku Niebler vegna rannsóknar á meintu misferli með fjármuni Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í frétt Politico.
Málið verður tekið fyrir Evrópuþinginu í dag þar sem greidd verða atkvæði um hvort staðfesta eigi niðurstöðu laganefndarinnar. Evrópska embætti saksóknara ásamt þýskum yfirvöldum hafði óskað eftir því að friðhelgi Niebler yrði aflétt svo hægt væri að rannsaka ásakanir um misnotkun á fjármunum Evrópuþingsins.
Sögð hafa notað aðstoðarmenn sem einkabílstjóra
Samkvæmt ásökununum á Niebler að hafa látið aðstoðarmenn sem greiddir voru af Evrópuþinginu aka sér milli München, Brussel og Strassborgar auk þess að sinna einkatengdum erindum sem ekki tengdust þingstörfum hennar. Hún hefur hafnað ásökununum og sagt þær rangar.
Niebler sagði áður að hún vildi að málið yrði rannsakað hratt og ítarlega og að hún myndi styðja rannsóknina að fullu.
Gagnrýna þingið fyrir að ganga of langt
Málið hefur vakið harðar deilur innan Evrópuþingsins um hlutverk laganefndarinnar. Gagnrýnendur segja nefndina ekki aðeins meta hvort pólitískar ofsóknir liggi að baki rannsóknarbeiðnum heldur einnig leggja eigið mat á sönnunargögn og þannig ganga inn á verksvið saksóknara og dómstóla.
Martin Schirdewan, einn leiðtoga Vinstrihreyfingarinnar á Evrópuþinginu, sagði að embætti evrópskra saksóknara ætti að fá að rannsaka málið án afskipta þingsins. Transparency International EU hefur einnig gagnrýnt málsmeðferðina og sagt þingmenn vera að grafa undan trúverðugleika friðhelgisreglna með því að pólitísk væða ferlið.
Þingmenn segja saksóknara hafa gert mistök
Á móti segja stuðningsmenn niðurstöðunnar að laganefndin hafi einmitt það hlutverk að meta hvort rannsóknarbeiðnir séu byggðar á veikburða eða pólitískum forsendum. Axel Voss úr Evrópska þjóðarflokknum sagði nefndina hafa farið ítarlega yfir gögn málsins áður en meirihluti hennar komst að þeirri niðurstöðu að hætta væri á að rannsóknin væri notuð til að skaða orðspor Niebler.
Málið kemur í kjölfar fleiri deilna milli Evrópuþingsins og belgískra saksóknara í tengslum við spillingarrannsóknir síðustu missera. Þar hafa þingmenn sakað yfirvöld um mistök og ónákvæmni sem hafi skaðað orðspor saklausra einstaklinga.
