Evrópuþingmaður hvetur Evrópuríki til að hafna stafrænni auðkenningu ESB

Meike Terhorst, lögmaður sem flutti ræðu á Evrópuþinginu á dögunum, hvatti Evrópubúa til að hafna stafrænni auðkenningu Evrópusambandsins og sagði að aðildarríkjum væri heimilt að neita að innleiða kerfið.

Í ræðu sinni sagði Terhorst að Evrópusambandið hefði ekki lagalegar heimildir til að knýja aðildarríkin til að taka upp stafræna auðkenningu þar sem sambandið væri hvorki ríki né þjóðríki. Að hennar mati gætu aðildarríkin því hafnað innleiðingu kerfisins.

„Ef þú ert með stafræna auðkenningu þá skaltu losa þig við hana,“ sagði hún og bætti við að hún teldi stafræna auðkennið verða að „stafrænum tvífara“ hvers einstaklings.

Auðkennið ekki gefið út af stjórnvöldum

Terhorst benti á að stafræna auðkennið yrði ekki gefið út af Evrópusambandinu eða ríkisstjórnum aðildarríkja heldur af „bandalagi banka og stórra tæknifyrirtækja“.

Að hennar mati væri því engin trygging fyrir því að borgarar nytu fullrar lagalegrar verndar þegar þeir afhentu kerfinu persónuupplýsingar sínar.

Gagnrýnir rafræna sjúkraskrá

Í ræðunni gagnrýndi hún jafnframt áform um stafrænt veski og reglur um rafrænar sjúkraskrár. Hún sagði að þegar heilbrigðisupplýsingar væru vistaðar með þessum hætti gæti þagnarskylda milli læknis og sjúklings orðið fyrir áhrifum og að stjórnvöld gætu nýtt upplýsingarnar gegn einstaklingum.

Tengir verkefnið við ID2020

Terhorst sagði að innleiðing stafrænnar auðkenningar byggðist meðal annars á verkefninu ID2020 og nefndi að þar kæmu meðal annars að Rockefeller Foundation, Microsoft og Accenture.

Hún sagði að verkefni sem tengdust rafrænum bólusetningarskilríkjum hefðu verið undirbúin fyrir heimsfaraldurinn og gagnrýndi rannsóknir og verkefni sem hún sagði tengjast örmerkingu einstaklinga.

Segir fjölmiðla notaða til að stuðla að innleiðingu

Benti Terhorst á að innleiðing stafrænnar auðkenningar væri studd með ritskoðun og áróðri í gegnum fyrirtækjarekna fjölmiðla. Hún sagði að ef slíkt upplýsingaflæði yrði stöðvað yrði mun erfiðara að innleiða kerfið.

Að lokum ítrekaði hún ráðleggingu sína til borgara um að taka ekki upp stafræna auðkenningu og lýsti því sem gildru sem fólk ætti að varast.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila