Fauci leyndi upplýsingum um raunverulegan uppruna Covid -19

James Erdman III, fyrrverandi starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA og rannsakandi hjá skrifstofu þjóðaröryggisstjóra Bandaríkjanna, sagði á þingheyrn í öldungadeildinni að bandarísk stjórnvöld og leyniþjónustusamfélagið hefðu tekið þátt í yfirhylmingu varðandi uppruna COVID-19 farsóttarinnar. Þetta kemur fram á vef Fox News.

Erdman sagði að hann hefði stýrt rannsókn á uppruna veirunnar, dularfullum heilsufarsatvikum og óútskýrðum fyrirbærum á árunum 2025 til 2026 á vegum sérstakrar rannsóknareiningar innan skrifstofu þjóðaröryggisstjóra. Hann sagði bæði CIA og háttsetta embættismenn hafa dregið úr líkum á að veiran hefði sloppið úr rannsóknarstofu í Kína.

Fauci stýrði sjálfur upplýsingaflæði

Í vitnisburði sínum sagði Erdman að niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að leyniþjónustusamfélagið hefði komið í veg fyrir að almenningur og stjórnmálamenn fengju réttar upplýsingar um uppruna farsóttarinnar. Að hans mati hefði stefna stjórnvalda í lýðheilsumálum orðið allt önnur ef almenningi hefði verið gert ljóst að veiran gæti hafa komið úr kínverskri rannsóknarstofu.

Hann sagði jafnframt að Anthony Fauci, fyrrverandi ráðgjafi bandarískra stjórnvalda í farsóttamálum, hefði haft bein áhrif á greiningarvinnu leyniþjónustunnar með því að tryggja að aðeins ákveðnir sérfræðingar og vísindamenn kæmu að ráðgjöf. Þar hafi meðal annars verið um að ræða höfunda vísindagreinarinnar „The Proximal Origin of SARS-CoV-2“ og aðra vísindamenn sem hefðu um árabil unnið náið með Fauci og stofnunum tengdum honum.

Vísindamenn tengdir kínverskum rannsóknum

Erdman sagði að margir þessara sérfræðinga hefðu setið í svokölluðum Biological Sciences Experts Group sem ráðgefið hefði bandarískum yfirvöldum í lífvopna- og sóttvarnamálum frá árinu 2006. Hann sagði meðlimi hópsins samtímis hafa fengið umfangsmikla styrki frá bandarískum heilbrigðisstofnunum, tekið þátt í bóluefnarannsóknum og átt samstarf við kínverska vísindamenn um rannsóknir á kórónuveirum.

Samkvæmt Erdman hafi þessi tengsl skapað alvarlega hagsmunaárekstra og leitt til þess að ekkert raunverulegt eftirlit hefði verið með rannsóknarstarfsemi á þessu sviði í yfir tvo áratugi.

CIA beitti þrýstingi og njósnaði um rannsakendur

Hann sagði einnig stjórnendur innan CIA hafa beitt starfsmenn þrýstingi og hefndaraðgerðum þegar þeir studdu kenninguna um rannsóknarstofuleka. Að hans sögn hafi stjórnendur breytt niðurstöðum greininga á síðustu stundu þannig að niðurstaðan varð óákveðin í stað þess að styðja rannsóknarstofukenninguna með afgerandi hætti.

Erdman sagði að CIA hefði jafnframt neitað að afhenda rannsóknarteymi hans gögn sem það hefði lagalegan rétt til að fá og að stofnunin hefði fylgst ólöglega með tölvu- og símanotkun rannsakenda og uppljóstrara sem störfuðu með teyminu.

Þá sagði hann að einn verktaki sem starfaði með rannsóknarteyminu hefði verið rekinn daginn eftir fund með rannsakendum og að CIA hefði tekið til baka tugi kassa með skjölum um JFK-morðið og MKUltra-verkefnið sem voru í vinnslu vegna afléttingar trúnaðar.

Kallar eftir róttækum hreinsunum

Í lok vitnisburðarins kallaði Erdman eftir róttækum breytingum á eftirliti með bandarískum leyniþjónustum og rannsóknum á sviði líftækni og sóttvarna. Hann sagði uppljóstrara gegna lykilhlutverki við að leiða sannleikann í ljós en að vernd þeirra væri í raun mjög veik innan kerfisins.

Hann hvatti þingið til að beita fjárveitingavaldi sínu til að knýja fram ábyrgð og útiloka að sambærileg yfirhylming gæti átt sér stað aftur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila