
Anthony Fauci, fyrrverandi forstjóri National Institute of Allergy and Infectious Diseases (NIAID), neitar að svara spurningum þegar hann situr nú fyrir svörum hjá nefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings. Hann vísar ítrekað til réttar síns samkvæmt fimmtu stjórnarskrárviðbót Bandaríkjanna og svarar ekki spurningum nefndarmanna. Greint er frá málinu á Fox News þar sem sýnt er beint frá yfirheyrslunni og horfa má á með því að smella hér.
Yfirheyrslan fer nú fram hjá nefnd öldungadeildarinnar um heimavarnir og stjórnsýslu undir forystu Rand Paul, sem hefur um árabil gagnrýnt Fauci fyrir meðferð hans á COVID-19 faraldrinum og fullyrðingar hans um uppruna veirunnar.
Lögmanni Fauci vísað úr fundarsal
Mikil spenna skapaðist á fundinum þegar David Schertler, lögmaður Fauci, reyndi ítrekað að grípa fram í án þess að hafa fengið orðið.
Rand Paul veitti honum nokkrar aðvaranir áður en hann fyrirskipaði öryggisvörðum að vísa lögmanninum úr fundarsalnum.

Neitar að svara öllum spurningum
Repúblikanar beina fjölmörgum spurningum að Fauci um lokanir samfélagsins, grímunotkun, bólusetningar, rannsóknir á svonefndum „gain-of-function“-tilraunum og uppruna COVID-19.
Öldungadeildarþingmennirnir Bernie Moreno og Josh Hawley gagnrýna hann harðlega fyrir að neita að svara jafnvel einföldum spurningum. Fauci endurtekur í hvert sinn að hann fylgi ráðleggingum lögmanna sinna og nýti rétt sinn samkvæmt fimmtu stjórnarskrárviðbótinni.
Rand Paul boðar frekari aðgerðir
Rand Paul segir að nefndin muni meta hvaða viðbrögð komi til greina vegna þess að Fauci neiti að svara spurningum eftir að hafa verið kvaddur til skýrslugjafar. Yfirheyrslan stendur enn yfir þegar þetta er skrifað og búist er við að fleiri öldungadeildarþingmenn taki til máls áður en henni lýkur.
