Fé sem Biden stjórnin sendi til Úkraínu rann til baka í starfsemi Demókrata

Nýlega birt skjöl sem byggð eru á hlerunum bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar, NSA, hafa vakið spurningar um meðferð bandarískra styrkja til Úkraínu á fyrstu misserum stríðsins. Samkvæmt upplýsingum sem birtar hafa verið í bandarískum fjölmiðlum sendu úkraínskir embættismenn fjármuni sem komu frá Banaríkjunum að undirlagi Biden stjórnarinnar aftur til Bandaríkjanna þar sem þeir runnu til starfsemi Demókrataflokksins og kosningateymis Biden.

Hleranir sagðar sýna umræður um fjárstreymi

Samkvæmt umfjöllun bandaríska miðilsins Just the News sýna skjölin samskipti úkraínskra embættismanna þar sem ræddar voru leiðir til að beina fjármunum sem upprunalega komu frá bandarískum skattgreiðendum aftur til Bandaríkjanna. Í umfjölluninni kemur fram að um hafi verið að ræða hugmyndir sem tengdust verkefnum á vegum USAID og annarra aðila sem fengu fjárveitingar vegna stuðnings við Úkraínu. Um hafi verið að ræða að minnsta kosti 200 milljón dollara.

Umræða um gagnsæi fjárveitinga

Bandaríkin hafa frá árinu 2022 veitt Úkraínu aðstoð að verðmæti margra tuga milljarða dollara í formi hergagna, fjárhagsstuðnings og mannúðaraðstoðar. Umfang stuðningsins hefur leitt til síaukinnar umræðu um gagnsæi, eftirlit og ábyrgð við ráðstöfun fjármunanna.

Birting skjalanna hefur því orðið til þess að krafan um frekari upplýsingar um ráðstöfun bandarískrar aðstoðar hefur aukist, einkum meðal þeirra sem gagnrýnt hafa umfang stuðningsins við Úkraínu.

Málið vekur pólitískar deilur

Málið hefur þegar orðið að pólitísku hitamáli í Bandaríkjunum. Stuðningsmenn frekari rannsókna segja nauðsynlegt að upplýsa hvort umræður sem fram koma í skjölunum hafi leitt til aðgerða, en aðrir segja að ekki liggi fyrir staðfesting á því að þær hugmyndir sem þar eru ræddar hafi nokkru sinni verið framkvæmdar. Óháð niðurstöðum hefur birting gagnanna aukið þrýsting á stjórnvöld um að veita nánari upplýsingar um hvernig fjármunum sem ætlaðir voru Úkraínu var ráðstafað og hvaða eftirlit var haft með notkun þeirra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila