
Júlíus Valsson skrifar:
Þegar eignir verða loforð og loforð verða fjárlög
Það er ástæða til að bera saman sölu Landsímans, hrikaleg ævintýri Orkuveitu Reykjavíkur og núverandi stöðu Landsvirkjunar. Samnefnarinn er sú hætta að langtímahagsmunir almennings víki fyrir skammtímaþörfum eða bjartsýni sem er sterkari en varfærni.
Landsíminn seldur 2005
Árið 2005 seldi ríkið 98,8% hlut sinn í Landssíma Íslands til Skipta ehf. fyrir 66,7 milljarða. Með lögum nr. 133/2005 voru 43 milljarðar eyrnamerktir: 18 til Landspítala, 15 til vega (þar af 8 í Sundabraut), restin í varðskip, nýsköpun, fjarskipti og fleira. Erlendir 32,2 milljarðar fóru í skuldauppgreiðslu. Síðan kom hrunið. Lögin voru felld úr gildi 2008. Eyrnamerkingin hvarf.
Púff!
Landspítalinn fékk ekki þá uppbyggingu sem lofað var á þeim tíma. Sundabraut biður enn. Síðar seldi einkavæddi Síminn Mílu til Ardian. Grunninnviðirnir, sem áður tilheyrðu ríkinu, fóru til erlends fjárfestis. Ríkið lét eignina af hendi því loforðin nutu ekki varanlegrar verndar. Almenningur var svikinn.
Óráðsía Orkuveitu Reykjavíkur
OR sýndi að opinbert eignarhald kemur ekki í veg fyrir óvarlega stjórn. Úttekt 2012 fann alvarlega veikleika í áhættustýringu, gengisáhættu og fjárfestingum utan kjarna. Árið 2011 þurfti 12 milljarða eigendalán, frestun og gjaldahækkanir. Reikningurinn kom að hluta til eigenda og viðskiptavina. Eigendalánið var fullgreitt 2020 og OR skilaði síðar góðum hagnaði. En CarbFix vekur enn spurningar: tap, háðar lánalínur frá OR, bókfært á núllvirði. Tæknilegur árangur við Hellisheiði sannar ekki sjálfkrafa arðsemi stórfelldrar útþenslu. Spurning er því hversu miklu fé má veitufyrirtæki leggja í slíkt áður en mörkin eru sett?
Landsvirkjun verður seld!
Landsvirkjun stendur öðruvísi. EES-reglur hafa þrengt allt svigrúm, samkeppnisreglur, ríkisaðstoðareftirlit, orkupakkar og aðgreining frá Landsneti. ESA rannsakar synjun um orkusölu til vetnisverkefna. 1,4 milljarða sekt vegna útboða Landsnets var felld úr gildi vegna annmarka á rannsókn. Orkupakkarnir krefjast samkeppni og sjálfstæðs eftirlits, en kveða þó ekki beint á um sölu á Landsvirkjun eða auðlindunum. Ráðherra hafnaði einkavæðingu og uppskiptingu á Alþingi 2025. Fyrirtækið er fjárhagslega sterkt, skuldlaust og greiddi upp síðustu ríkisábyrgðir og hefur ekki farið langt út fyrir kjarna eins og OR.
Sporin hræða
Hliðstæðan við Símann gengur aðeins upp ef pólitískur vilji til sölu myndast. Hliðstæðan við OR gengur upp ef stjórnarhættir verða pólitískir og fjárfestingar víkja frá hlutverkinu. Forstjóraskipti og endurskoðun Alcoa-samningsins segja líklega meira um næstu skref en orkupakkarnir sjálfir.
Lærdómurinn er tvenns konar:
Af Símanum: Ráðstöfunarloforð geta breyst eftir að eign er seld.
Af OR: Fyrirtæki í almannaeigu getur tekið meiri áhættu en eigendur og viðskiptavinir hafa ástæðu til að sætta sig við.
Fyrir Landsvirkjun felst vörnin í skýrri eigandastefnu, hóflegum arðgreiðslum sem varðveita fjárfestingargetu og skilgreiningu á samfélagslegu hlutverki innan EES-reglnanna.
Þjóðin getur áfram átt fyrirtækið þótt svigrúmið til að stýra því þrengist. Það er hættan sem rétt er að ræða af nákvæmni þ.e. áður en einstakar ákvarðanir hafa saman breytt hlutverki þess. Ekki með æsingi, heldur með þeirri köldu staðreynd að eignarhald og ráðstöfunarvald fara ekki alltaf saman.
Til umhugsunar:
Landsvirkjun hefur með ákvörðun forsætisráðherra verið undanþegin almennum aðgangsreglum upplýsingalaga á grundvelli samkeppnissjónarmiða. Sú ákvörðun takmarkar rétt almennings til að krefjast gagna um rekstur fyrirtækisins.
https://www.althingi.is/lagas/nuna/2012140.html
